Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - NUMBERS 31

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    31:1 Drottinn talaði við Móse og sagði:

    31:2 ,,Hefn þú Ísraelsmanna á Midíanítum. Eftir það skalt þú safnast til þíns fólks.``

    31:3 Móse talaði við lýðinn og sagði: ,,Hervæðið menn af yður til herfarar, og skulu þeir fara á móti Midíansmönnum til þess að koma fram hefnd Drottins á Midíansmönnum.

    31:4 Skuluð þér senda þúsund manns af ættkvísl hverri af öllum ættkvíslum Ísraels til herfararinnar.``

    31:5 Voru þá látnir til af þúsundum Ísraels þúsund af ættkvísl hverri, tólf þúsund herbúinna manna.

    31:6 Og Móse sendi þá, þúsund manns af ættkvísl hverri, til herfarar, og með þeim Pínehas, son Eleasars prests, og hafði hann með sér hin helgu áhöld og hvellilúðrana.

    31:7 Og þeir börðust við Midíansmenn, eins og Drottinn hafði boðið Móse, og drápu alla karlmenn.

    31:8 Þeir drápu og konunga Midíansmanna, auk annarra, er þeir felldu: Eví, Rekem, Súr, Húr og Reba, fimm konunga Midíansmanna. Bíleam Beórsson drápu þeir og með sverði.

    31:9 Ísraelsmenn tóku að herfangi konur Midíansmanna og börn þeirra og rændu öllum eykjum þeirra, öllum fénaði þeirra og öllum eigum þeirra.

    31:10 En þeir lögðu eld í allar borgir þeirra, sem þeir bjuggu í, og í allar tjaldbúðir þeirra.

    31:11 Og þeir tóku allt ránsféð og allt herfangið, bæði menn og skepnur,

    31:12 og færðu Móse og Eleasar presti og söfnuði Ísraelsmanna hið hertekna fólk, herfangið og ránsféð í herbúðirnar, til Móabsheiða, sem eru við Jórdan gegnt Jeríkó.

    31:13 Móse og Eleasar prestur og allir höfuðsmenn safnaðarins gengu í móti þeim út fyrir herbúðirnar.

    31:14 Reiddist Móse þá hersveitarforingjunum, bæði þeim er settir voru yfir þúsundir og þeim er settir voru yfir hundruð og komu úr leiðangrinum,

    31:15 og sagði við þá: ,,Gáfuð þér öllum konum líf?

    31:16 Sjá, það voru einmitt þær, sem urðu tilefni til þess, að Ísraelsmenn að ráði Bíleams sýndu Drottni ótrúmennsku vegna Peórs, svo að plágan kom yfir söfnuð Drottins.

    31:17 Drepið því öll piltbörn. Drepið og allar þær konur, er samræði hafa átt við karlmann,

    31:18 en látið öll stúlkubörn, er eigi hafa átt samræði við karlmann, lifa handa yður.

    31:19 En sjálfir skuluð þér hafast við fyrir utan herbúðirnar í sjö daga. Hver sem drepið hefir mann og hver sem snert hefir veginn mann, þér skuluð syndhreinsa yður á þriðja degi og sjöunda degi, svo og þeir, er þér hafið tekið að herfangi.

    31:20 Þér skuluð og syndhreinsa allan klæðnað, alla hluti af skinni gjörva, allt sem gjört er úr geitahárum, svo og öll tréílát.``

    31:21 Og Eleasar prestur sagði við hermennina, er gengið höfðu í bardagann: ,,Þetta er ákvæði í lögmálinu, er Drottinn hefir boðið Móse.

    31:22 En láta skuluð þér gull, silfur, eir, járn, tin og blý,

    31:23 allt sem eld þolir, ganga í gegnum eld, og er það þá hreint. Þó skal það enn syndhreinsað með hreinsunarvatni. En allt sem eigi þolir eld, skuluð þér láta ganga í gegnum vatn.

    31:24 Og þér skuluð þvo klæði yðar á sjöunda degi, og eruð þá hreinir. Eftir það megið þér koma í herbúðirnar.``

    31:25 Drottinn talaði við Móse og sagði:

    31:26 ,,Tel þú herfangið, bæði menn og skepnur, þú og Eleasar prestur og ætthöfðingjar safnaðarins,

    31:27 og skipt þú herfanginu til helminga milli þeirra, er vopnaviðskiptin áttu, þeirra er í leiðangurinn fóru, og alls safnaðarins.

    31:28 Og þú skalt taka í skattgjald Drottni til handa af bardagamönnunum, þeim er í leiðangurinn fóru, eina sál af hverjum fimm hundruðum _ af mönnum, nautgripum, ösnum og smáfénaði.

    31:29 Takið það af þeirra helmingi, og skalt þú fá það Eleasar presti sem fórnargjöf Drottni til handa.

    31:30 En af helmingi Ísraelsmanna skalt þú taka frá eina af hverjum fimmtíu _ af mönnum, nautgripum, ösnum og smáfénaði, af öllum skepnum, og fá levítunum, sem annast búð Drottins.``

    31:31 Og Móse og Eleasar prestur gjörðu eins og Drottinn hafði boðið Móse.

    31:32 En herfangið _ það sem eftir var af ránsfé því, er herfólkið hafði rænt _ voru 675.000 af sauðfénaði,

    31:33 72.000 af nautgripum

    31:34 og 61.000 asnar,

    31:35 og alls 32.000 konur er eigi höfðu átt samræði við karlmann.

    31:36 En helmingshlutur þeirra, er í leiðangurinn fóru, var að tölu 337.500 af sauðfénaði,

    31:37 og skattgjaldið til handa Drottni af sauðfénaðinum var 675,

    31:38 af nautgripum 36.000, og skattgjaldið af þeim Drottni til handa 72,

    31:39 asnarnir 30.500, og skattgjaldið af þeim Drottni til handa 61,

    31:40 og mennirnir 16.000, og skattgjaldið af þeim Drottni til handa 32 sálir.

    31:41 Móse fékk Eleasar presti fórnarskattgjaldið Drottni til handa, eins og Drottinn hafði boðið Móse.

    31:42 Og af helmingnum, er Ísraelsmenn fengu og Móse skipti frá hermönnunum _

    31:43 en í hluta safnaðarins kom: af sauðfénaði 337.500,

    31:44 af nautgripum 36.000,

    31:45 af ösnum 30.500

    31:46 og af mönnum 16.000, _

    31:47 af helmingnum, er Ísraelsmenn fengu, tók Móse frá einn af hverjum fimmtíu, bæði af mönnum og skepnum, og fékk levítunum, er annast búð Drottins, eins og Drottinn hafði boðið Móse.

    31:48 Höfuðsmennirnir yfir þúsundum hersins, fyrirliðarnir fyrir þúsundunum og fyrirliðarnir fyrir hundruðunum, gengu nú fram fyrir Móse

    31:49 og sögðu við Móse: ,,Vér þjónar þínir höfum talið bardagamennina, er vér áttum yfir að ráða, og vér söknum eigi neins af þeim.

    31:50 Fyrir því færum vér Drottni að fórnargjöf hver það, er hann hefir komist yfir af gullgripum: armhringa, armbönd, fingurgull, eyrnagull og hálsmen, til þess að friðþægja fyrir sálir vorar fyrir Drottni.``

    31:51 Þeir Móse og Eleasar tóku við gullinu af þeim. Var það alls konar listasmíði.

    31:52 En gullið, sem þeir færðu Drottni að fórnargjöf, var alls 16.750 siklar, og var það frá fyrirliðunum fyrir þúsundunum og frá fyrirliðunum fyrir hundruðunum.

    31:53 Hermennirnir höfðu rænt hver handa sér.

    31:54 Og þeir Móse og Eleasar prestur tóku við gullinu af fyrirliðunum fyrir þúsundunum og hundruðunum og færðu það í samfundatjaldið, Ísraelsmönnum til minningar frammi fyrir Drottni.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine