Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - NUMBERS 8

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    8:1 Drottinn talaði við Móse og sagði:

    8:2 ,,Tala þú við Aron og seg við hann: Þá er þú setur upp lampana, skulu lamparnir sjö varpa ljósi sínu fram undan ljósastikunni.``

    8:3 Og Aron gjörði svo. Hann setti lampana upp framan á ljósastikuna, eins og Drottinn hafði boðið Móse.

    8:4 Þetta var smíðið á ljósastikunni: Hún var gjör af gulli með drifnu smíði, bæði stétt hennar og blóm var drifið smíði. Hafði hann gjört ljósastikuna eftir fyrirmynd þeirri, er Drottinn hafði sýnt Móse.

    8:5 Drottinn talaði við Móse og sagði:

    8:6 ,,Skil þú levítana úr Ísraelsmönnum og hreinsa þá.

    8:7 Og þetta skalt þú við þá gjöra til þess að hreinsa þá: Stökk þú á þá syndhreinsunarvatni, og þeir skulu láta rakhníf ganga yfir allan líkama sinn og þvo klæði sín og hreinsa sig.

    8:8 Og þeir skulu taka ungneyti og matfórn, er því fylgir, fínt mjöl olíublandað, og annað ungneyti skalt þú taka í syndafórn.

    8:9 Síðan skalt þú leiða levítana fram fyrir samfundatjaldið og safna saman öllum söfnuði Ísraelsmanna.

    8:10 Og þú skalt leiða levítana fram fyrir Drottin, og Ísraelsmenn skulu leggja hendur sínar yfir þá.

    8:11 Og Aron skal helga levítana sem fórn frammi fyrir Drottni af hendi Ísraelsmanna, og skulu þeir takast á hendur að gegna þjónustu Drottins.

    8:12 En levítarnir skulu leggja hendur sínar á höfuð nautanna. Öðru skal fórna í syndafórn og hinu í brennifórn Drottni til handa til þess að friðþægja fyrir levítana.

    8:13 Og þú skalt leiða þá fram fyrir Aron og fram fyrir sonu hans og helga þá sem fórn Drottni til handa.

    8:14 Og þú skalt greina þá frá Ísraelsmönnum, svo að þeir heyri mér.

    8:15 Því næst skulu levítarnir ganga inn til þess að gegna þjónustu við samfundatjaldið, og þú skalt hreinsa þá og helga þá sem fórn,

    8:16 því að þeir eru gefnir mér til fullkominnar eignar af Ísraelsmönnum. Í stað alls þess er opnar móðurlíf, í stað allra frumburða meðal Ísraelsmanna hefi ég tekið þá mér til eignar,

    8:17 því að ég á alla frumburði meðal Ísraelsmanna, bæði menn og skepnur. Á þeim degi, er ég laust alla frumburði í Egyptalandi, helgaði ég mér þá.

    8:18 Og ég tók levítana í stað allra frumburða meðal Ísraelsmanna.

    8:19 Og ég gaf þá Aroni og sonum hans til eignar af Ísraelsmönnum, til þess að þeir gegni þjónustu fyrir Ísraelsmenn í samfundatjaldinu og til þess að þeir friðþægi fyrir Ísraelsmenn, svo að eigi komi plága yfir Ísraelsmenn, þá er Ísraelsmenn koma nærri helgidóminum.``

    8:20 Móse og Aron og allur söfnuður Ísraelsmanna gjörði svo við levítana. Gjörðu Ísraelsmenn að öllu leyti svo við þá sem Drottinn hafði boðið Móse um þá.

    8:21 Levítarnir syndhreinsuðu sig og þvoðu klæði sín, og Aron helgaði þá sem fórn frammi fyrir Drottni, og Aron friðþægði fyrir þá til þess að hreinsa þá.

    8:22 Gengu levítarnir því næst inn til þess að gegna þjónustu sinni í samfundatjaldinu fyrir augliti Arons og fyrir augliti sona hans. Gjörðu þeir svo við levítana sem Drottinn hafði boðið Móse um þá.

    8:23 Drottinn talaði við Móse og sagði:

    8:24 ,,Þetta gildir um levítana: Frá því þeir eru tuttugu og fimm ára og þaðan af eldri skulu þeir koma til þess að gegna herþjónustu með þjónustu í samfundatjaldinu.

    8:25 En frá því þeir eru fimmtugir skulu þeir láta af þjónustunni og eigi þjóna framar.

    8:26 Þeir mega veita bræðrum sínum aðstoð í samfundatjaldinu og annast það, sem annast ber, en þjónustu skulu þeir eigi gegna. Þannig skalt þú fara með levítana, að því er kemur til sýslunar þeirra.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine