Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PROVERBS 21

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    21:1 Hjarta konungsins er eins og vatnslækir í hendi Drottins, hann beygir það til hvers, er honum þóknast.

    21:2 Manninum þykja allir sínir vegir réttir, en Drottinn vegur hjörtun.

    21:3 Að iðka réttlæti og rétt er Drottni þóknanlegra en sláturfórn.

    21:4 Drembileg augu og hrokafullt hjarta eru lampi óguðlegra, _ allt er það synd.

    21:5 Fyrirætlanir iðjumannsins reynast fésamar vel, en öll flasfærni lendir í fjárskorti.

    21:6 Fjársjóðir, sem aflað er með lygatungu, eru sem þjótandi vindblær, snörur dauðans.

    21:7 Ofríki hinna óguðlegu dregur þá á eftir sér, því að þeir færast undan að gjöra það, sem rétt er.

    21:8 Boginn er vegur þess manns, sem synd er hlaðinn, en verk hins hreina eru ráðvandleg.

    21:9 Betri er vist í horni á húsþaki en sambúð við þrasgjarna konu.

    21:10 Sál hins óguðlega girnist illt, náungi hans finnur enga miskunn hjá honum.

    21:11 Sé spottaranum refsað, verður hinn einfaldi hygginn, og sé vitur maður fræddur, lærir hann hyggindi.

    21:12 Gætur gefur réttlátur að húsi hins óguðlega, steypir óguðlegum í ógæfu.

    21:13 Sá sem byrgir eyrun fyrir kveini hins fátæka, hann mun sjálfur kalla og eigi fá bænheyrslu.

    21:14 Gjöf á laun sefar reiði og múta í barmi ákafa heift.

    21:15 Réttlátum manni er gleði að gjöra það, sem rétt er, en illgjörðamönnum er það skelfing.

    21:16 Sá maður, sem villist af vegi skynseminnar, mun brátt hvílast í söfnuði framliðinna.

    21:17 Öreigi verður sá, er sólginn er í skemmtanir, sá sem sólginn er í vín og olíu, verður ekki ríkur.

    21:18 Hinn óguðlegi er lausnargjald fyrir hinn réttláta, og svikarinn kemur í stað hinna hreinskilnu.

    21:19 Betra er að búa í eyðimerkur-landi en með þrasgjarnri og geðillri konu.

    21:20 Dýrmætur fjársjóður og olía er í heimkynnum hins vitra, en heimskur maður sólundar því.

    21:21 Sá sem ástundar réttlæti og kærleika, hann öðlast líf, réttlæti og heiður.

    21:22 Vitur maður vinnur borg kappanna og rífur niður vígið, sem hún treysti á.

    21:23 Sá sem varðveitir munn sinn og tungu, hann varðveitir sálu sína frá nauðum.

    21:24 Sá sem er hrokafullur, dramblátur, hann heitir spottari, sá sem gjörir allt af taumlausum hroka.

    21:25 Óskir letingjans drepa hann, því að hendur hans vilja ekki vinna.

    21:26 Ávallt er letinginn að óska sér, en hinn réttláti gefur og er ekki naumur.

    21:27 Sláturfórn óguðlegra er Drottni andstyggð, hvað þá, sé hún framborin fyrir óhæfuverk.

    21:28 Falsvottur mun tortímast, en maður, sem heyrt hefir, má ávallt tala.

    21:29 Óguðlegur maður setur upp öruggan svip, en hinn hreinskilni gjörir veg sinn öruggan.

    21:30 Engin viska er til og engin hyggni, né heldur ráð gegn Drottni.

    21:31 Hesturinn er hafður viðbúinn til orustudagsins, en sigurinn er í hendi Drottins.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine