Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 10

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    10:1 Hví stendur þú fjarri, Drottinn, hví byrgir þú augu þín á neyðartímum?

    10:2 Hinn óguðlegi ofsækir hina hrjáðu í hroka sínum, þeir flækjast í vélum þeim, er þeir hafa upp hugsað.

    10:3 Hinn óguðlegi lofar Guð fyrir það, er sála hans girnist, og hinn ásælni prísar Drottin, sem hann fyrirlítur.

    10:4 Hinn óguðlegi segir í drambsemi sinni: ,,Hann hegnir eigi!`` ,,Guð er ekki til`` _ svo hugsar hann í öllu.

    10:5 Fyrirtæki hans heppnast ætíð, dómar þínir fara hátt yfir höfði hans, alla fjandmenn sína kúgar hann.

    10:6 Hann segir í hjarta sínu: ,,Ég verð eigi valtur á fótum, frá kyni til kyns mun ég eigi í ógæfu rata.``

    10:7 Munnur hans er fullur af formælingum, svikum og ofbeldi, undir tungu hans býr illska og ranglæti.

    10:8 Hann situr í launsátri í þorpunum, í skúmaskotinu drepur hann hinn saklausa, augu hans skima eftir hinum bágstöddu.

    10:9 Hann gjörir fyrirsát í fylgsninu eins og ljón í skógarrunni; hann gjörir fyrirsát til þess að ná hinum volaða, hann nær honum í snöru sína, í net sitt.

    10:10 Kraminn hnígur hann niður, hinn bágstaddi fellur fyrir klóm hans.

    10:11 Hann segir í hjarta sínu: ,,Guð gleymir því, hann hefir hulið auglit sitt, sér það aldrei.``

    10:12 Rís þú upp, Drottinn! Lyft þú upp hendi þinni, Guð! Gleym eigi hinum voluðu.

    10:13 Hvers vegna á hinn óguðlegi að sýna Guði fyrirlitningu, segja í hjarta sínu: ,,Þú hegnir eigi``?

    10:14 Þú gefur gaum að mæðu og böli til þess að taka það í hönd þína. Hinn bágstaddi felur þér það; þú ert hjálpari föðurlausra.

    10:15 Brjót þú armlegg hins óguðlega, og er þú leitar að guðleysi hins vonda, finnur þú það eigi framar.

    10:16 Drottinn er konungur um aldur og ævi, heiðingjum er útrýmt úr landi hans.

    10:17 Þú hefir heyrt óskir hinna voluðu, Drottinn, þú eykur þeim hugrekki, hneigir eyra þitt.

    10:18 Þú lætur hina föðurlausu og kúguðu ná rétti sínum. Eigi skulu menn af moldu framar beita kúgun.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine