Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 112

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    112:1 Halelúja. Sæll er sá maður, sem óttast Drottin og hefir mikla unun af boðum hans.

    112:2 Niðjar hans verða voldugir á jörðunni, ætt réttvísra mun blessun hljóta.

    112:3 Nægtir og auðæfi eru í húsi hans, og réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu.

    112:4 Hann upprennur réttvísum sem ljós í myrkrinu, mildur og meðaumkunarsamur og réttlátur.

    112:5 Vel farnast þeim manni, sem er mildur og fús að lána, sem framkvæmir málefni sín með réttvísi,

    112:6 því að hann mun eigi haggast að eilífu, hins réttláta mun minnst um eilífð.

    112:7 Hann óttast eigi ill tíðindi, hjarta hans er stöðugt og treystir Drottni.

    112:8 Hjarta hans er öruggt, hann óttast eigi, og loks fær hann að horfa á fjendur sína auðmýkta.

    112:9 Hann hefir miðlað mildilega, gefið fátækum, réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu, horn hans gnæfir hátt í vegsemd.

    112:10 Hinn óguðlegi sér það, og honum gremst, nístir tönnum og tortímist. Ósk óguðlegra verður að engu.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine