Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 115

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    115:1 Gef eigi oss, Drottinn, eigi oss, heldur þínu nafni dýrðina sakir miskunnar þinnar og trúfesti.

    115:2 Hví eiga heiðingjarnir að segja: ,,Hvar er Guð þeirra?``

    115:3 En vor Guð er í himninum, allt sem honum þóknast, það gjörir hann.

    115:4 Skurðgoð þeirra eru silfur og gull, handaverk manna.

    115:5 Þau hafa munn, en tala ekki, augu, en sjá ekki,

    115:6 þau hafa eyru, en heyra ekki, nef, en finna engan þef.

    115:7 Þau hafa hendur, en þreifa ekki, fætur, en ganga ekki, þau tala eigi með barka sínum.

    115:8 Eins og þau eru, verða smiðir þeirra, allir þeir er á þau treysta.

    115:9 En Ísrael treystir Drottni, hann er hjálp þeirra og skjöldur.

    115:10 Arons ætt treystir Drottni, hann er hjálp þeirra og skjöldur.

    115:11 Þeir sem óttast Drottin treysta Drottni, hann er hjálp þeirra og skjöldur.

    115:12 Drottinn minnist vor, hann mun blessa, hann mun blessa Ísraels ætt, hann mun blessa Arons ætt,

    115:13 hann mun blessa þá er óttast Drottin, yngri sem eldri.

    115:14 Drottinn mun fjölga yður, sjálfum yður og börnum yðar.

    115:15 Þér eruð blessaðir af Drottni, skapara himins og jarðar.

    115:16 Himinninn er himinn Drottins, en jörðina hefir hann gefið mannanna börnum.

    115:17 Eigi lofa andaðir menn Drottin, né heldur neinn sá, sem hniginn er í dauðaþögn,

    115:18 en vér viljum lofa Drottin, héðan í frá og að eilífu. Halelúja.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine