Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 118

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    118:1 Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.

    118:2 Það mæli Ísrael: ,,Því að miskunn hans varir að eilífu!``

    118:3 Það mæli Arons ætt: ,,Því að miskunn hans varir að eilífu!``

    118:4 Það mæli þeir sem óttast Drottin: ,,Því að miskunn hans varir að eilífu!``

    118:5 Í þrengingunni ákallaði ég Drottin, hann bænheyrði mig og rýmkaði um mig.

    118:6 Drottinn er með mér, ég óttast eigi, hvað geta menn gjört mér?

    118:7 Drottinn er með mér með hjálp sína, og ég mun fá að horfa á ófarir hatursmanna minna.

    118:8 Betra er að leita hælis hjá Drottni en að treysta mönnum,

    118:9 betra er að leita hælis hjá Drottni en að treysta tignarmönnum.

    118:10 Allar þjóðir umkringdu mig, en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.

    118:11 Þær umkringdu mig á alla vegu, en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.

    118:12 Þær umkringdu mig eins og býflugur vax, brunnu sem eldur í þyrnum, en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.

    118:13 Mér var hrundið, til þess að ég skyldi falla, en Drottinn veitti mér lið.

    118:14 Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, og hann varð mér til hjálpræðis.

    118:15 Fagnaðar- og siguróp kveður við í tjöldum réttlátra: Hægri hönd Drottins vinnur stórvirki,

    118:16 hægri hönd Drottins upphefur, hægri hönd Drottins vinnur stórvirki.

    118:17 Ég mun eigi deyja, heldur lifa og kunngjöra verk Drottins.

    118:18 Drottinn hefir hirt mig harðlega, en eigi ofurselt mig dauðanum.

    118:19 Ljúkið upp fyrir mér hliðum réttlætisins, að ég megi fara inn um þau og lofa Drottin.

    118:20 Þetta er hlið Drottins, réttlátir menn fara inn um það.

    118:21 Ég lofa þig, af því að þú bænheyrðir mig og ert orðinn mér hjálpræði.

    118:22 Steinninn sem smiðirnir höfnuðu er orðinn að hyrningarsteini.

    118:23 Að tilhlutun Drottins er þetta orðið, það er dásamlegt í augum vorum.

    118:24 Þetta er dagurinn sem Drottinn hefir gjört, fögnum, verum glaðir á honum.

    118:25 Drottinn, hjálpa þú, Drottinn, gef þú gengi!

    118:26 Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins, frá húsi Drottins blessum vér yður.

    118:27 Drottinn er Guð, hann lætur oss skína ljós. Tengið saman dansraðirnar með laufgreinum, allt inn að altarishornunum.

    118:28 Þú ert Guð minn, og ég þakka þér, Guð minn, ég vegsama þig.

    118:29 Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine