Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 143

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    143:1 Davíðssálmur. Drottinn, heyr þú bæn mína, ljá eyra grátbeiðni minni í trúfesti þinni, bænheyr mig í réttlæti þínu.

    143:2 Gakk eigi í dóm við þjón þinn, því að enginn er réttlátur fyrir augliti þínu.

    143:3 Óvinurinn eltir sál mína, slær líf mitt til jarðar, lætur mig búa í myrkri eins og þá sem löngu eru dánir.

    143:4 Andi minn örmagnast í mér, hjarta mitt er agndofa hið innra í mér.

    143:5 Ég minnist fornra daga, íhuga allar gjörðir þínar, ígrunda verk handa þinna.

    143:6 Ég breiði út hendurnar í móti þér, sál mín er sem örþrota land fyrir þér. [Sela]

    143:7 Flýt þér að bænheyra mig, Drottinn, andi minn örmagnast, byrg eigi auglit þitt fyrir mér, svo að ég verði ekki líkur þeim, er gengnir eru til grafar.

    143:8 Lát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags, því að þér treysti ég. Gjör mér kunnan þann veg, er ég á að ganga, því að til þín hef ég sál mína.

    143:9 Frelsa mig frá óvinum mínum, Drottinn, ég flý á náðir þínar.

    143:10 Kenn mér að gjöra vilja þinn, því að þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig um slétta braut.

    143:11 Veit mér að lifa, Drottinn, sakir nafns þíns, leið mig úr nauðum sakir réttlætis þíns.

    143:12 Lát þú óvini mína hverfa sakir trúfesti þinnar, ryð þeim öllum úr vegi, er að mér þrengja, því að ég er þjónn þinn.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine