Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 16

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    16:1 Davíðs-miktam. Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.

    16:2 Ég segi við Drottin: ,,Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig.``

    16:3 Á hinum heilögu sem í landinu eru og hinum dýrlegu _ á þeim hefi ég alla mína velþóknun.

    16:4 Miklar eru þjáningar þeirra, er kjörið hafa sér annan guð. Ég vil eigi dreypa þeirra blóðugu dreypifórnum og eigi taka nöfn þeirra mér á varir.

    16:5 Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum.

    16:6 Mér féllu að erfðahlut indælir staðir, og arfleifð mín líkar mér vel.

    16:7 Ég lofa Drottin, er mér hefir ráð gefið, jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra.

    16:8 Ég hefi Drottin ætíð fyrir augum, þegar hann er mér til hægri handar, skriðnar mér ekki fótur.

    16:9 Fyrir því fagnar hjarta mitt, sál mín gleðst, og líkami minn hvílist í friði,

    16:10 því að þú ofurselur Helju eigi líf mitt, leyfir eigi að þinn trúaði sjái gröfina.

    16:11 Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine