Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 2

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    2:1 Hví geisa heiðingjarnir og hví hyggja þjóðirnar á fánýt ráð?

    2:2 Konungar jarðarinnar ganga fram, og höfðingjarnir bera ráð sín saman gegn Drottni og hans smurða:

    2:3 ,,Vér skulum brjóta sundur fjötra þeirra, vér skulum varpa af oss viðjum þeirra.``

    2:4 Hann sem situr á himni hlær. Drottinn gjörir gys að þeim.

    2:5 Því næst talar hann til þeirra í reiði sinni, skelfir þá í bræði sinni:

    2:6 ,,Ég hefi skipað konung minn á Síon, fjallið mitt helga.``

    2:7 Ég vil kunngjöra ályktun Drottins: Hann mælti við mig: ,,Þú ert sonur minn. Í dag gat ég þig.

    2:8 Bið þú mig, og ég mun gefa þér þjóðirnar að erfð og endimörk jarðar að óðali.

    2:9 Þú skalt mola þá með járnsprota, mölva þá sem leirsmiðs ker.``

    2:10 Verið því hyggnir, þér konungar, látið yður segjast, þér dómarar á jörðu.

    2:11 Þjónið Drottni með ótta og fagnið með lotningu.

    2:12 Hyllið soninn, að hann reiðist eigi og vegur yðar endi í vegleysu,

    2:13 því að skjótt bálast upp reiði hans. Sæll er hver sá er leitar hælis hjá honum.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine