Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 30

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    30:1 Musterisvígsluljóð. Davíðssálmur.

    30:2 Ég tigna þig, Drottinn, því að þú hefir bjargað mér og eigi látið óvini mína hlakka yfir mér.

    30:3 Drottinn, Guð minn, ég hrópaði til þín og þú læknaðir mig.

    30:4 Drottinn, þú heimtir sál mína úr Helju, lést mig halda lífi, er aðrir gengu til grafar.

    30:5 Syngið Drottni lof, þér hans trúuðu, vegsamið hans heilaga nafn.

    30:6 Andartak stendur reiði hans, en alla ævi náð hans. Að kveldi gistir oss grátur, en gleðisöngur að morgni.

    30:7 En ég uggði eigi að mér og hugsaði: ,,Aldrei skriðnar mér fótur.``

    30:8 Drottinn, af náð þinni hafðir þú gjört bjarg mitt stöðugt, en nú huldir þú auglit þitt og ég skelfdist.

    30:9 Til þín, Drottinn, kallaði ég, og Drottin grátbændi ég:

    30:10 ,,Hver ávinningur er í dauða mínum, í því að ég gangi til grafar? Getur duftið lofað þig, kunngjört trúfesti þína?

    30:11 Heyr, Drottinn, og líkna mér, ó Drottinn, ver þú hjálpari minn!``

    30:12 Þú breyttir grát mínum í gleðidans, leystir af mér hærusekkinn og gyrtir mig fögnuði,

    30:13 að sál mín megi lofsyngja þér og eigi þagna. Drottinn, Guð minn, ég vil þakka þér að eilífu.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine