Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 4

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    4:1 Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.

    4:2 Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti, rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.

    4:3 Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]

    4:4 Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð, að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

    4:5 Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]

    4:6 Færið réttar fórnir og treystið Drottni.

    4:7 Margir segja: ,,Hver lætur oss hamingju líta?`` Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.

    4:8 Þú hefir veitt hjarta mínu meiri gleði en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.

    4:9 Í friði leggst ég til hvíldar og sofna, því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine