Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 55

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    55:1 Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðs-maskíl.

    55:2 Hlýð, ó Guð, á bæn mína, fel þig eigi fyrir grátbeiðni minni.

    55:3 Veit mér athygli og svara mér. Ég kveina í harmi mínum og styn

    55:4 sakir háreysti óvinarins, sakir hróps hins óguðlega, því að þeir steypa yfir mig ógæfu og ofsækja mig grimmilega.

    55:5 Hjartað berst ákaft í brjósti mér, ógnir dauðans falla yfir mig,

    55:6 ótti og skelfing er yfir mig komin, og hryllingur fer um mig allan,

    55:7 svo að ég segi: ,,Ó að ég hefði vængi eins og dúfan, þá skyldi ég fljúga burt og finna hvíldarstað,

    55:8 já, ég skyldi svífa langt burt, ég skyldi gista í eyðimörkinni. [Sela]

    55:9 Ég skyldi flýta mér að leita mér hælis fyrir þjótandi vindum og veðri.``

    55:10 Rugla, Drottinn, sundra tungum þeirra, því að ég sé kúgun og deilur í borginni.

    55:11 Dag og nótt ganga þær um á múrum hennar, en ógæfa og armæða eru þar inni fyrir.

    55:12 Glötun er inni í henni, ofbeldi og svik víkja eigi burt frá torgi hennar.

    55:13 Því að það er eigi óvinur sem hæðir mig _ það gæti ég þolað, og eigi hatursmaður minn er hreykir sér yfir mig _ fyrir honum gæti ég farið í felur,

    55:14 heldur þú, jafningi minn, vinur minn og kunningi,

    55:15 við sem vorum ástúðarvinir, sem gengum í eindrægni saman í Guðs hús.

    55:16 Dauðinn komi yfir þá; stígi þeir lifandi niður til Heljar, því að illska er í bústöðum þeirra, í hjörtum þeirra.

    55:17 En ég hrópa til Guðs, og Drottinn mun hjálpa mér.

    55:18 Kvöld og morgna og um miðjan dag harma ég og styn, og hann heyrir raust mína.

    55:19 Hann endurleysir sál mína og gefur mér frið, svo að þeir geta eigi nálgast mig, því að mótstöðumenn mínir eru margir.

    55:20 Guð mun heyra, og hann er ríkir frá eilífð mun lægja þá. [Sela] Þeir breytast ekki og óttast eigi Guð.

    55:21 Vinur minn lagði hendur á þann er lifði í sátt við hann, hann rauf sáttmál sitt.

    55:22 Hálli en smjör er tunga hans, en ófriður er í hjarta hans, mýkri en olía eru orð hans, og þó brugðin sverð.

    55:23 Varpa áhyggjum þínum á Drottin, hann mun bera umhyggju fyrir þér, hann mun eigi að eilífu láta réttlátan mann verða valtan á fótum.

    55:24 Og þú, ó Guð, munt steypa þeim niður í grafardjúpið. Morðingjar og svikarar munu eigi ná hálfum aldri, en ég treysti þér.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine