Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 59

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    59:1 Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Miktam eftir Davíð, þá er Sál sendi menn og þeir héldu vörð um húsið til þess að drepa hann.

    59:2 Frelsa mig frá óvinum mínum, Guð minn, bjarga mér frá fjendum mínum.

    59:3 Frelsa mig frá illgjörðamönnunum og hjálpa mér gegn morðingjunum,

    59:4 því sjá, þeir sitja um líf mitt, hinir sterku áreita mig, þótt ég hafi ekki brotið eða syndgað, Drottinn.

    59:5 Þótt ég hafi eigi misgjört, hlaupa þeir að og búast til áhlaups. Vakna þú mér til liðveislu og lít á!

    59:6 En þú, Drottinn, Guð hersveitanna, Ísraels Guð, vakna þú til þess að vitja allra þjóðanna, þyrm eigi neinum fráhverfum syndara. [Sela]

    59:7 Á hverju kvöldi koma þeir aftur, ýlfra eins og hundar og sveima um borgina.

    59:8 Sjá, það freyðir úr munni þeirra, sverð eru á vörum þeirra, því að _ ,,Hver heyrir?``

    59:9 En þú, Drottinn, hlærð að þeim, þú gjörir gys að öllum þjóðunum.

    59:10 Vígi mitt, um þig vil ég kveða, því að Guð er háborg mín.

    59:11 Guð kemur í móti mér með náð sinni, Guð lætur mig sjá óvini mína auðmýkta.

    59:12 Drep þá eigi, svo að lýður minn gleymi eigi, lát þá reika fyrir veldi þínu og steyp þeim af stóli, þú Drottinn, skjöldur vor,

    59:13 sakir syndar munns þeirra, orðsins af vörum þeirra, og lát þá verða veidda í hroka þeirra, og sakir formælinga þeirra og lygi, er þeir tala.

    59:14 Afmá þá í reiði, afmá þá, uns þeir eru eigi framar til, og lát þá kenna á því, að Guð ríkir yfir Jakobsætt, allt til endimarka jarðar. [Sela]

    59:15 Á hverju kveldi koma þeir aftur, ýlfra eins og hundar og sveima um borgina.

    59:16 Þeir reika um eftir æti og urra, ef þeir verða eigi saddir.

    59:17 En ég vil kveða um mátt þinn og fagna yfir náð þinni á hverjum morgni, því að þú hefir gjörst háborg mín og athvarf á degi neyðar minnar.

    59:18 Vígi mitt, um þig vil ég kveða, því að Guð er háborg mín, minn miskunnsami Guð.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine