Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 68

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    68:1 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Ljóð.

    68:2 Guð rís upp, óvinir hans tvístrast, þeir sem hata hann flýja fyrir augliti hans.

    68:3 Eins og reykur eyðist, eyðast þeir, eins og vax bráðnar í eldi, tortímast óguðlegir fyrir augliti Guðs.

    68:4 En réttlátir gleðjast, fagna fyrir augliti Guðs og kætast stórum.

    68:5 Syngið fyrir Guði, vegsamið nafn hans, leggið braut fyrir hann er ekur gegnum öræfin. Drottinn heitir hann, fagnið fyrir augliti hans.

    68:6 Hann er faðir föðurlausra, vörður ekknanna, Guð í sínum heilaga bústað.

    68:7 Guð lætur hina einmana hverfa heim aftur, hann leiðir hina fjötruðu út til hamingju, en uppreisnarseggir skulu búa í hrjóstrugu landi.

    68:8 Ó Guð, þegar þú fórst út á undan lýð þínum, þegar þú brunaðir fram um öræfin, [Sela]

    68:9 þá nötraði jörðin, og himnarnir drupu fyrir Guði, Drottni frá Sínaí, fyrir Guði, Ísraels Guði.

    68:10 Ríkulegu regni dreyptir þú, ó Guð, á arfleifð þína, það sem vanmegnaðist, styrktir þú.

    68:11 Staðinn þar sem söfnuður þinn dvelur, bjóst þú hinum hrjáðu, ó Guð, sakir gæsku þinnar.

    68:12 Drottinn lætur orð sín rætast, konurnar sem sigur boða eru mikill her:

    68:13 ,,Konungar hersveitanna flýja, þeir flýja, en hún sem heima situr skiptir herfangi.

    68:14 Hvort viljið þér liggja milli fjárgirðinganna? Vængir dúfunnar eru lagðir silfri og fjaðrir hennar íbleiku gulli.``

    68:15 Þegar Hinn almáttki tvístraði konungunum, þá snjóaði á Salmon.

    68:16 Guðs fjall er Basansfjall, tindafjall er Basansfjall.

    68:17 Hví lítið þér, tindafjöll, öfundarauga það fjall er Guð hefir kjörið sér til bústaðar, þar sem Drottinn samt mun búa um eilífð?

    68:18 Hervagnar Guðs eru tíþúsundir, þúsundir á þúsundir ofan. Hinn alvaldi kom frá Sínaí til helgidómsins.

    68:19 Þú steigst upp til hæða, hafðir á burt bandingja, tókst við gjöfum frá mönnum, jafnvel uppreisnarmönnum, að þú, Drottinn, Guð, mættir búa þar.

    68:20 Lofaður sé Drottinn, er ber oss dag eftir dag, Guð er hjálpráð vort. [Sela]

    68:21 Guð er oss hjálpræðisguð, og Drottinn alvaldur bjargar frá dauðanum.

    68:22 Já, Guð sundurmolar höfuð óvina sinna, hvirfil þeirra, er ganga í sekt sinni.

    68:23 Drottinn hefir sagt: ,,Ég vil sækja þá til Basan, flytja þá frá djúpi hafsins,

    68:24 að þú megir troða þá til bana, að tungur hunda þinna megi fá sinn hlut af óvinunum.``

    68:25 Menn horfa á inngöngu þína, ó Guð, inngöngu Guðs míns og konungs í musterið.

    68:26 Söngvarar eru í fararbroddi, þá strengleikarar, ásamt yngismeyjum, er berja bumbur.

    68:27 Lofið Guð á hátíðarsamkundum, lofið Drottin, þér sem eruð af uppsprettu Ísraels.

    68:28 Þar er Benjamín litli, er ríkir yfir þeim, höfðingjar Júda í þyrpingu, höfðingjar Sebúlons, höfðingjar Naftalí.

    68:29 Bjóð út, ó Guð, styrkleik þínum, þeim styrkleik sem þú hefir auðsýnt oss

    68:30 frá musteri þínu í Jerúsalem. Konungar skulu færa þér gjafir.

    68:31 Ógna þú dýrinu í sefinu, uxaflokkunum ásamt bolakálfum þjóðanna, sem troða menn fótum sökum ágirndar sinnar á silfri. Tvístra þú þjóðum, er unna ófriði!

    68:32 Það koma sendiherrar frá Egyptalandi, Bláland færir Guði gjafir hröðum höndum.

    68:33 Þér konungsríki jarðar, syngið Guði, syngið Drottni lof, [Sela]

    68:34 honum sem ekur um himnanna himna frá eilífð, hann lætur raust sína gjalla, hina voldugu raust.

    68:35 Tjáið Guði dýrð, yfir Ísrael er hátign hans og máttur hans í skýjunum.

    68:36 Ógurlegur er Guð í helgidómi sínum, Ísraels Guð veitir lýðnum mátt og megin. Lofaður sé Guð!

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine