Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 89

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    89:1 Etans-maskíl Esraíta.

    89:2 Um náðarverk Drottins vil ég syngja að eilífu, kunngjöra trúfesti þína með munni mínum frá kyni til kyns,

    89:3 því að ég hefi sagt: Náð þín er traust að eilífu, á himninum grundvallaðir þú trúfesti þína.

    89:4 Ég hefi gjört sáttmála við minn útvalda, unnið Davíð þjóni mínum svolátandi eið:

    89:5 ,,Ég vil staðfesta ætt þína að eilífu, reisa hásæti þitt frá kyni til kyns.`` [Sela]

    89:6 Þá lofuðu himnarnir dásemdarverk þín, Drottinn, og söfnuður heilagra trúfesti þína.

    89:7 Því að hver er í himninum jafn Drottni, hver er líkur Drottni meðal guðasonanna?

    89:8 Guð er ægilegur í hópi heilagra, mikill er hann og óttalegur öllum þeim, sem eru umhverfis hann.

    89:9 Drottinn, Guð hersveitanna, hver er sem þú? Þú ert voldugur, Drottinn, og trúfesti þín er umhverfis þig.

    89:10 Þú ræður yfir ofstopa hafsins, þegar öldur þess hefjast, stöðvar þú þær.

    89:11 Þú knosaðir skrímslið eins og veginn mann, með þínum volduga armi tvístraðir þú óvinum þínum.

    89:12 Þinn er himinninn, þín er og jörðin, þú hefir grundvallað veröldina og allt sem í henni er.

    89:13 Þú hefir skapað norðrið og suðrið, Tabor og Hermon fagna yfir nafni þínu.

    89:14 Þú hefir máttugan armlegg, hönd þín er sterk, hátt upphafin hægri hönd þín.

    89:15 Réttlæti og réttvísi er grundvöllur hásætis þíns, miskunn og trúfesti ganga frammi fyrir þér.

    89:16 Sæll er sá lýður, sem þekkir fagnaðarópið, sem gengur í ljósi auglitis þíns, Drottinn.

    89:17 Þeir gleðjast yfir nafni þínu alla daga og fagna yfir réttlæti þínu,

    89:18 því að þú ert þeirra máttug prýði, og sakir velþóknunar þinnar munt þú hefja horn vort,

    89:19 því að Drottni heyrir skjöldur vor, konungur vor Hinum heilaga í Ísrael.

    89:20 Þá talaðir þú í sýn til dýrkanda þíns og sagðir: ,,Ég hefi sett kórónu á kappa, ég hefi upphafið útvaldan mann af lýðnum.

    89:21 Ég hefi fundið Davíð þjón minn, smurt hann með minni heilögu olíu.

    89:22 Hönd mín mun gjöra hann stöðugan og armleggur minn styrkja hann.

    89:23 Óvinurinn skal eigi ráðast að honum, og ekkert illmenni skal kúga hann,

    89:24 heldur skal ég gjöra út af við fjendur hans að honum ásjáandi, og hatursmenn hans skal ég ljósta.

    89:25 Trúfesti mín og miskunn skulu vera með honum, og fyrir sakir nafns míns skal horn hans gnæfa hátt.

    89:26 Ég legg hönd hans á hafið og hægri hönd hans á fljótin.

    89:27 Hann mun segja við mig: Þú ert faðir minn, Guð minn og klettur hjálpræðis míns.

    89:28 Og ég vil gjöra hann að frumgetning, að hinum hæsta meðal konunga jarðarinnar.

    89:29 Ég vil varðveita miskunn mína við hann að eilífu, og sáttmáli minn við hann skal stöðugur standa.

    89:30 Ég læt niðja hans haldast við um aldur og hásæti hans meðan himinninn er til.

    89:31 Ef synir hans hafna lögmáli mínu og ganga eigi eftir boðum mínum,

    89:32 ef þeir vanhelga lög mín og varðveita eigi boðorð mín,

    89:33 þá vil ég vitja afbrota þeirra með vendinum og misgjörða þeirra með plágum,

    89:34 en miskunn mína mun ég ekki frá honum taka og eigi bregða trúfesti minni.

    89:35 Ég vil eigi vanhelga sáttmála minn og eigi breyta því, er mér hefir af vörum liðið.

    89:36 Ég hefi einu sinni svarið við heilagleik minn og mun aldrei svíkja Davíð:

    89:37 Niðjar hans skulu haldast við um aldur og hásæti hans sem sólin fyrir mér.

    89:38 Það skal standa stöðugt að eilífu sem tunglið, svo sannarlega sem áreiðanlegt vitni er á himnum.`` [Sela]

    89:39 Og þó hefir þú útskúfað og hafnað og reiðst þínum smurða.

    89:40 Þú hefir riftað sáttmálanum við þjón þinn, vanhelgað kórónu hans og fleygt henni til jarðar.

    89:41 Þú hefir brotið niður alla múrveggi hans og lagt virki hans í eyði.

    89:42 Allir vegfarendur ræna hann, hann er til háðungar orðinn nágrönnum sínum.

    89:43 Þú hefir hafið hægri hönd fjenda hans, glatt alla óvini hans.

    89:44 Þú hefir og látið sverðseggjar hans hörfa undan og eigi látið hann standast í bardaganum.

    89:45 Þú hefir látið endi á verða vegsemd hans og hrundið hásæti hans til jarðar.

    89:46 Þú hefir stytt æskudaga hans og hulið hann skömm. [Sela]

    89:47 Hversu lengi, Drottinn, ætlar þú að dyljast, á reiði þín ætíð að brenna sem eldur?

    89:48 Minnst þú, Drottinn, hvað ævin er, til hvílíks hégóma þú hefir skapað öll mannanna börn.

    89:49 Hver er sá, er lifi og sjái eigi dauðann, sá er bjargi sálu sinni úr greipum Heljar. [Sela]

    89:50 Hvar eru þín fyrri náðarverk, ó Drottinn, þau er þú í trúfesti þinni sórst Davíð?

    89:51 Minnst, ó Drottinn, háðungar þjóna þinna, að ég verð að bera í skauti smánan margra þjóða,

    89:52 er óvinir þínir, Drottinn, smána mig með, smána fótspor þíns smurða. _________

    89:53 Lofaður sé Drottinn að eilífu. Amen. Amen.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine