Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 92

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    92:1 Gott er að lofa Drottin og lofsyngja nafni þínu, þú Hinn hæsti,

    92:2 að kunngjöra miskunn þína að morgni og trúfesti þína um nætur

    92:3 á tístrengjað hljóðfæri og hörpu með strengjaleik gígjunnar.

    92:4 Þú hefir glatt mig, Drottinn, með dáð þinni, yfir handaverkum þínum fagna ég.

    92:5 Hversu mikil eru verk þín, Drottinn, harla djúpar hugsanir þínar.

    92:6 Fíflið eitt skilur eigi, og fáráðlingurinn einn skynjar eigi þetta.

    92:7 Þegar óguðlegir greru sem gras og allir illgjörðamennirnir blómguðust, þá var það til þess að þeir skyldu afmáðir verða að eilífu,

    92:8 en þú sem ert á hæðum, ert til að eilífu, Drottinn.

    92:9 Því sjá, óvinir þínir, Drottinn, því sjá, óvinir þínir farast, allir illgjörðamennirnir tvístrast.

    92:10 En mig lætur þú bera hornið hátt eins og vísundinn, mig hressir þú með ferskri olíu.

    92:11 Auga mitt lítur með gleði á fjandmenn mína, eyra mitt heyrir með gleði um níðingana, er rísa gegn mér.

    92:12 Hinir réttlátu gróa sem pálminn, vaxa sem sedrustréð á Líbanon.

    92:13 Þeir eru gróðursettir í húsi Drottins, gróa í forgörðum Guðs vors.

    92:14 Jafnvel í hárri elli bera þeir ávöxt, þeir eru safamiklir og grænir.

    92:15 Þeir kunngjöra, að Drottinn er réttlátur, klettur minn, sem ekkert ranglæti er hjá.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine