Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - PSALMS 97

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    97:1 Drottinn er konungur orðinn! jörðin fagni, eyjafjöldinn gleðjist.

    97:2 Ský og sorti eru umhverfis hann, réttlæti og réttvísi eru grundvöllur hásætis hans,

    97:3 eldur fer fyrir honum og bálast umhverfis spor hans.

    97:4 Leiftur hans lýsa um jarðríki, jörðin sér það og nötrar.

    97:5 Björgin bráðna sem vax fyrir Drottni, fyrir Drottni gjörvallrar jarðarinnar.

    97:6 Himnarnir kunngjöra réttlæti hans, og allar þjóðir sjá dýrð hans.

    97:7 Allir skurðgoðadýrkendur verða til skammar, þeir er stæra sig af falsguðunum. Allir guðir falla fram fyrir honum.

    97:8 Síon heyrir það og gleðst, Júdadætur fagna sakir dóma þinna, Drottinn.

    97:9 Því að þú, Drottinn, ert Hinn hæsti yfir gjörvallri jörðunni, þú ert hátt hafinn yfir alla guði.

    97:10 Drottinn elskar þá er hata hið illa, hann verndar sálir dýrkenda sinna, frelsar þá af hendi óguðlegra.

    97:11 Ljós rennur upp réttlátum og gleði hjartahreinum.

    97:12 Gleðjist, þér réttlátir, yfir Drottni, vegsamið hans heilaga nafn.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine