Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - ROMANS 12

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    12:1 Því brýni ég yður, bræður, að þér, vegna miskunnar Guðs, bjóðið fram sjálfa yður að lifandi, heilagri, Guði þóknanlegri fórn. Það er sönn og rétt guðsdýrkun af yðar hendi.

    12:2 Hegðið yður eigi eftir öld þessari, heldur takið háttaskipti með endurnýjung hugarfarsins, svo að þér fáið að reyna, hver sé vilji Guðs, hið góða, fagra og fullkomna.

    12:3 Fyrir þá náð, sem mér er gefin, segi ég yður hverjum og einum að hugsa ekki hærra um sig en hugsa ber, heldur í réttu hófi, og halda sér hver og einn við þann mæli trúar, sem Guð hefur úthlutað honum.

    12:4 Vér höfum á einum líkama marga limi, en limirnir hafa ekki allir sama starfa.

    12:5 Eins erum vér, þótt margir séum, einn líkami í Kristi, en hver um sig annars limir.

    12:6 Vér höfum margvíslegar náðargjafir, eftir þeirri náð, sem oss er gefin. Sé það spádómsgáfa, þá notum hana í hlutfalli við trúna.

    12:7 Sé það þjónusta, skulum vér þjóna. Sá sem kennir, hann kenni,

    12:8 sá sem áminnir, hann áminni. Sá sem útbýtir gjöfum, gjöri það í einlægni. Sá sem veitir forstöðu, sé kostgæfinn og sá sem iðkar miskunnsemi, gjöri það með gleði.

    12:9 Elskan sé flærðarlaus. Hafið andstyggð á hinu vonda, en haldið fast við hið góða.

    12:10 Sýnið hver öðrum bróðurkærleika og ástúð, og verið hver yðar fyrri til að veita öðrum virðing.

    12:11 Verið ekki hálfvolgir í áhuganum, verið brennandi í andanum. Þjónið Drottni.

    12:12 Verið glaðir í voninni, þolinmóðir í þjáningunni og staðfastir í bæninni.

    12:13 Takið þátt í þörfum heilagra, stundið gestrisni.

    12:14 Blessið þá, er ofsækja yður, blessið þá, en bölvið þeim ekki.

    12:15 Fagnið með fagnendum, grátið með grátendum.

    12:16 Berið sama hug til allra, hreykið yður ekki, en haldið yður að hinum lítilmótlegu. Ætlið yður ekki hyggna með sjálfum yður.

    12:17 Gjaldið engum illt fyrir illt. Stundið það sem fagurt er fyrir sjónum allra manna.

    12:18 Hafið frið við alla menn að því leyti sem það er unnt og á yðar valdi.

    12:19 Hefnið yðar ekki sjálfir, þér elskaðir, heldur lofið hinni refsandi reiði Guðs að komast að, því að ritað er: ,,Mín er hefndin, ég mun endurgjalda, segir Drottinn.``

    12:20 En ,,ef óvin þinn hungrar, þá gef honum að eta, ef hann þyrstir, þá gef honum að drekka. Með því að gjöra þetta, safnar þú glóðum elds á höfuð honum.``

    12:21 Lát ekki hið vonda yfirbuga þig, heldur sigra þú illt með góðu.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine