Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - SONG OF SOLOMON 3

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    3:1 Í hvílu minni um nótt leitaði ég hans sem sál mín elskar, ég leitaði hans, en fann hann ekki.

    3:2 Ég skal fara á fætur og ganga um borgina, um strætin og torgin. Ég skal leita hans, sem sál mín elskar! Ég leitaði hans, en fann hann ekki.

    3:3 Verðirnir, sem ganga um borgina, hittu mig. ,,Hafið þér séð þann sem sál mín elskar?``

    3:4 Óðara en ég var frá þeim gengin, fann ég þann sem sál mín elskar. Ég þreif í hann og sleppi honum ekki, fyrr en ég hefi leitt hann í hús móður minnar og í herbergi hennar er mig ól.

    3:5 Ég særi yður, Jerúsalemdætur, við skógargeiturnar eða við hindirnar í haganum: Vekið ekki, vekið ekki elskuna, fyrr en hún sjálf vill.

    3:6 Hvað er það, sem kemur úr heiðinni eins og reykjarsúlur, angandi af myrru og reykelsi, af alls konar kaupmannskryddi?

    3:7 Það er burðarrekkja Salómons, sextíu kappar kringum hana af köppum Ísraels.

    3:8 Allir með sverð í hendi, vanir hernaði, hver og einn með sverð við lend vegna næturóttans.

    3:9 Burðarstól lét Salómon konungur gjöra sér úr viði frá Líbanon.

    3:10 Stólpa hans lét hann gjöra af silfri, bakið úr gulli, sætið úr purpuradúk, lagt hægindum að innan af elsku Jerúsalemdætra.

    3:11 Gangið út, Síonardætur, og horfið á Salómon konung, á sveiginn sem móðir hans hefir krýnt hann á brúðkaupsdegi hans og á gleðidegi hjarta hans.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine