Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - ZECHARIAH 1

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    1:1 Á áttunda mánuði annars ríkisárs Daríusar kom orð Drottins til Sakaría spámanns Berekíasonar, Iddósonar, svo hljóðandi:

    1:2 Drottinn var stórreiður feðrum yðar.

    1:3 Seg því við þá: Svo segir Drottinn allsherjar: Snúið yður til mín _ segir Drottinn allsherjar _ þá mun ég snúa mér til yðar _ segir Drottinn allsherjar.

    1:4 Verið ekki eins og feður yðar, sem hinir fyrri spámenn áminntu með svofelldum orðum: ,,Svo segir Drottinn allsherjar: Snúið yður frá yðar vondu breytni og frá yðar vondu verkum!`` En þeir hlýddu ekki og gáfu engan gaum að mér _ segir Drottinn.

    1:5 Feður yðar _ hvar eru þeir? Og spámennirnir _ geta þeir lifað eilíflega?

    1:6 En orð mín og ályktanir, þau er ég bauð þjónum mínum, spámönnunum, að kunngjöra, hafa þau ekki náð feðrum yðar, svo að þeir sneru við og sögðu: ,,Eins og Drottinn allsherjar hafði ásett sér að gjöra við oss eftir breytni vorri og verkum vorum, svo hefir hann við oss gjört``?

    1:7 Á tuttugasta og fjórða degi hins ellefta mánaðar, það er mánaðarins sebat, á öðru ríkisári Daríusar, kom orð Drottins til Sakaría spámanns Berekíasonar, Iddósonar, svo hljóðandi:

    1:8 Ég sá sýn á náttarþeli: mann ríðandi á rauðum hesti, og hafði hann staðnæmst meðal mýrtustrjánna, sem eru í dalverpinu. Að baki honum voru rauðir, jarpir og hvítir hestar.

    1:9 Og er ég spurði: ,,Hverjir eru þessir, herra minn?`` svaraði engillinn mér, sá er við mig talaði: ,,Ég skal sýna þér, hverjir þeir eru.``

    1:10 Þá tók maðurinn, sem staðnæmst hafði meðal mýrtustrjánna, til máls og sagði: ,,Þessir eru þeir, sem Drottinn hefir sent til þess að fara um jörðina.``

    1:11 Þá svöruðu þeir engli Drottins, er staðnæmst hafði meðal mýrtustrjánna, og sögðu: ,,Vér höfum farið um jörðina, og sjá, öll jörðin er í ró og kyrrð.``

    1:12 Þá svaraði engill Drottins og sagði: ,,Drottinn allsherjar, hversu lengi á því fram að fara, að þú miskunnir þig ekki yfir Jerúsalem og Júdaborgir, er þú hefir nú reiður verið í sjötíu ár?``

    1:13 Þá svaraði Drottinn englinum, er við mig talaði, blíðum orðum og huggunarríkum,

    1:14 og engillinn sem við mig talaði, sagði við mig: ,,Kunngjör og seg: Svo segir Drottinn allsherjar: Ég brenn af mikilli vandlæting vegna Jerúsalem og Síonar

    1:15 og ég er stórreiður hinum andvaralausu heiðingjum, sem juku á bölið, þá er ég var lítið eitt reiður.

    1:16 Fyrir því segir Drottinn svo: Ég sný mér aftur að Jerúsalem með miskunnsemi. Hús mitt skal verða endurreist í henni _ segir Drottinn allsherjar _ og mælivaður skal þaninn verða yfir Jerúsalem.

    1:17 Kunngjör enn fremur og seg: Svo segir Drottinn allsherjar: Enn skulu borgir mínar fljóta í gæðum, og enn mun Drottinn hugga Síon og enn útvelja Jerúsalem.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine