Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - 1CHRONICLES 13

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    13:1 Davíð ráðgaðist um við þúsundhöfðingjana og við hundraðshöfðingjana, við alla höfðingjana.

    13:2 Og Davíð mælti við Ísraelssöfnuð: ,,Ef yður líkar svo, og virðist það vera komið frá Drottni, Guði vorum, þá skulum vér senda til frænda vorra, sem eftir eru orðnir í öllum héruðum Ísraels, svo og til prestanna og levítanna í borgunum með beitilöndunum, er að þeim liggja, og skulu þeir safnast til vor.

    13:3 Skulum vér sækja örk Guðs vors, því að á dögum Sáls höfum vér ekki spurt um hana.``

    13:4 Svaraði þá allur söfnuður, að svo skyldi gjöra, því að öllum lýðnum leist þetta rétt vera.

    13:5 Kallaði þá Davíð saman allan Ísrael, frá Síhór í Egyptalandi, allt þar til, er leið liggur til Hamat, til þess að flytja örk Guðs frá Kirjat Jearím.

    13:6 Og Davíð og allur Ísrael fór til Baala, til Kirjat Jearím, sem er í Júda, til þess að flytja þaðan örk Guðs, sem kennd er við nafn Drottins, hans, sem situr uppi yfir kerúbunum.

    13:7 Og þeir óku örk Drottins á nýjum vagni úr húsi Abínadabs, og stýrðu þeir Ússa og Ahjó vagninum.

    13:8 Og Davíð og allur Ísrael dansaði fyrir Guði af öllum mætti, með söng, gígjum, hörpum, bumbum, skálabumbum og lúðrum.

    13:9 En er komið var að þreskivelli Kídons, rétti Ússa út höndina til þess að grípa í örkina, því að slakað hafði verið á taumhaldinu við akneytin.

    13:10 Þá upptendraðist reiði Drottins gegn Ússa, og hann laust hann þar, af því að hann hafði gripið hendi sinni í örkina, og dó hann þar fyrir augliti Guðs.

    13:11 En Davíð féll það þungt, að Drottinn hafði lostið Ússa svo hart, og hefir þessi staður verið nefndur Peres Ússa allt fram á þennan dag.

    13:12 Davíð varð hræddur við Guð á þeim degi og sagði: ,,Hvernig má ég þá flytja örk Guðs til mín?``

    13:13 Og Davíð flutti ekki örkina til sín í Davíðsborg, heldur sneri hann með hana til húss Óbeð Edóms í Gat.

    13:14 Og örk Guðs var þrjá mánuði í húsi Óbeð Edóms, í húsi hans, og Drottinn blessaði hús Óbeð Edóms og allt það, er hans var.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine