Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - 1CHRONICLES 14

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    14:1 Híram, konungur í Týrus, gjörði menn á fund Davíðs og sendi honum sedrustré, steinhöggvara og trésmiði til þess að reisa höll handa honum.

    14:2 Davíð kannaðist þá við, að Drottinn hefði staðfest konungdóm hans yfir Ísrael, að konungdómur sinn væri hátt upp hafinn fyrir sakir þjóðar hans, Ísraels.

    14:3 Davíð tók sér enn konur í Jerúsalem, og Davíð gat enn sonu og dætur.

    14:4 Þetta eru nöfn þeirra sona, sem hann eignaðist í Jerúsalem: Sammúa, Sóbab, Natan, Salómon,

    14:5 Jíbhar, Elísúa, Elpelet,

    14:6 Nóga, Nefeg, Jafía,

    14:7 Elísama, Beeljada og Elífelet.

    14:8 Þegar Filistar heyrðu, að Davíð væri smurður til konungs yfir allan Ísrael, lögðu allir Filistar af stað að leita Davíðs. Og er Davíð frétti það, fór hann í móti þeim.

    14:9 Og Filistar komu og dreifðu sér um Refaímdal.

    14:10 Þá gekk Davíð til frétta við Guð og sagði: ,,Á ég að fara móti Filistum? Munt þú gefa þá í hendur mér?`` Drottinn svaraði honum: ,,Far þú, ég mun gefa þá í hendur þér.``

    14:11 Héldu þeir þá til Baal Perasím. Og Davíð vann þar sigur á þeim, og Davíð sagði: ,,Guð hefir látið mig skola burt óvinum mínum, eins og þegar vatn ryður sér rás.`` Fyrir því var sá staður nefndur Baal Perasím.

    14:12 En þeir létu þar eftir guði sína, og voru þeir brenndir á báli að boði Davíðs.

    14:13 Filistar komu aftur og dreifðu sér um dalinn.

    14:14 Þá gekk Davíð enn til frétta við Guð, og Guð svaraði honum: ,,Far þú eigi í móti þeim. Far þú í bug og kom að baki þeim og ráð á þá fram undan bakatrjánum.

    14:15 Og þegar þú heyrir þyt af ferð í krónum bakatrjánna, þá skalt þú leggja til orustu, því að þá fer Guð fyrir þér til þess að ljósta her Filista.``

    14:16 Og Davíð gjörði eins og Guð bauð honum og vann sigur á her Filista frá Gíbeon til Geser.

    14:17 Og frægð Davíðs barst um öll lönd, og Drottinn lét ótta við hann koma yfir allar þjóðir.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine