Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - 1CORINTHIANS 11

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    11:1 Verið eftirbreytendur mínir eins og ég er eftirbreytandi Krists.

    11:2 Ég hrósa yður fyrir það, að þér í öllu minnist mín og haldið fast við kenningarnar, eins og ég flutti yður þær.

    11:3 En ég vil, að þér vitið, að Kristur er höfuð sérhvers manns, maðurinn er höfuð konunnar og Guð höfuð Krists.

    11:4 Sérhver sá maður, sem biðst fyrir eða flytur spádóma Guðs og hefur á höfðinu, hann óvirðir höfuð sitt.

    11:5 En sérhver kona, sem biðst fyrir eða flytur spádóma Guðs berhöfðuð, óvirðir höfuð sitt. Það er hið sama sem hún hefði látið krúnuraka sig.

    11:6 Ef konan því vill ekki hylja höfuð sitt, þá láti hún klippa sig. En ef það er óvirðing fyrir konuna að láta klippa eða raka hár sitt, þá hafi hún á höfðinu.

    11:7 Karlmaður á ekki að hylja höfuð sitt, því að hann er ímynd og vegsemd Guðs, en konan er vegsemd mannsins.

    11:8 Því ekki er maðurinn af konunni kominn, heldur konan af manninum,

    11:9 og ekki var heldur maðurinn skapaður vegna konunnar, heldur konan vegna mannsins.

    11:10 Þess vegna á konan vegna englanna að bera tákn um yfirráð mannsins á höfði sér.

    11:11 Þó er hvorki konan óháð manninum né maðurinn konunni í samfélaginu við Drottin,

    11:12 því að eins og konan er komin af manninum, svo er og maðurinn fæddur af konunni, en allt er frá Guði.

    11:13 Dæmið sjálfir: Sæmir það konu að biðja til Guðs berhöfðuð?

    11:14 Kennir ekki sjálf náttúran yður, að ef karlmaður ber sítt hár, þá er það honum vansæmd,

    11:15 en ef kona ber sítt hár, þá er það henni sæmd? Því að síða hárið er gefið henni í höfuðblæju stað.

    11:16 En ætli nú einhver sér að gjöra þetta að kappsmáli, þá viti sá, að annað er ekki venja vor eða safnaða Guðs.

    11:17 En um leið og ég áminni um þetta, get ég ekki hrósað yður fyrir samkomur yðar, sem eru fremur til ills en góðs.

    11:18 Í fyrsta lagi heyri ég, að flokkadráttur eigi sér stað á meðal yðar, er þér komið saman á safnaðarsamkomum, og því trúi ég að nokkru leyti.

    11:19 Víst verður að vera flokkaskipting á meðal yðar, til þess að þeir yðar þekkist úr, sem hæfir eru.

    11:20 Þegar þér komið saman er það ekki til þess að neyta máltíðar Drottins,

    11:21 því að við borðhaldið hrifsar hver sína máltíð, svo einn er hungraður, en annar drekkur sig ölvaðan.

    11:22 Hafið þér þá ekki hús til að eta og drekka í? Eða fyrirlítið þér söfnuð Guðs og gjörið þeim kinnroða, sem ekkert eiga? Hvað á ég að segja við yður? Á ég að hæla yður fyrir þetta? Nei, ég hæli yður ekki.

    11:23 Því að ég hef meðtekið frá Drottni það, sem ég hef kennt yður: Nóttina, sem Drottinn Jesús var svikinn, tók hann brauð,

    11:24 gjörði þakkir, braut það og sagði: ,,Þetta er minn líkami, sem er fyrir yður. Gjörið þetta í mína minningu.``

    11:25 Sömuleiðis tók hann og bikarinn eftir kvöldmáltíðina og sagði: ,,Þessi bikar er hinn nýi sáttmáli í mínu blóði. Gjörið þetta, svo oft sem þér drekkið, í mína minningu.``

    11:26 Svo oft sem þér etið þetta brauð og drekkið af bikarnum, boðið þér dauða Drottins, þangað til hann kemur.

    11:27 Hver sem etur brauðið eða drekkur bikar Drottins óverðuglega, verður þess vegna sekur við líkama og blóð Drottins.

    11:28 Hver maður prófi sjálfan sig og eti síðan af brauðinu og drekki af bikarnum.

    11:29 Því að sá sem etur og drekkur án þess að dæma rétt um líkamann, hann etur og drekkur sjálfum sér til dóms.

    11:30 Fyrir því eru svo margir sjúkir og krankir á meðal yðar, og allmargir deyja.

    11:31 Ef vér dæmdum um sjálfa oss, yrðum vér ekki dæmdir.

    11:32 En fyrst Drottinn dæmir oss, þá er hann að aga oss til þess að vér verðum ekki dæmdir sekir ásamt heiminum.

    11:33 Fyrir því skuluð þér bíða hver eftir öðrum, bræður mínir, þegar þér komið saman til að matast.

    11:34 Ef nokkur er hungraður, þá eti hann heima, til þess að samkomur yðar verði yður ekki til dóms. Annað mun ég segja til um, þegar ég kem.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine