Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - 1CORINTHIANS 12

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    12:1 En svo ég minnist á gáfur andans, bræður, þá vil ég ekki að þér séuð fáfróðir um þær.

    12:2 Þér vitið, að þegar þér voruð heiðingjar, þá létuð þér leiða yður til mállausra skurðgoðanna, rétt eins og verkast vildi.

    12:3 Fyrir því læt ég yður vita, að enginn, sem talar af Guðs anda, segir: ,,Bölvaður sé Jesús!`` og enginn getur sagt: ,,Jesús er Drottinn!`` nema af heilögum anda.

    12:4 Mismunur er á náðargáfum, en andinn er hinn sami,

    12:5 og mismunur er á embættum, en Drottinn hinn sami,

    12:6 og mismunur er á hæfileikum að framkvæma, en Guð hinn sami, sem öllu kemur til leiðar í öllum.

    12:7 Andinn opinberast í sérhverjum til þess, sem gagnlegt er.

    12:8 Einum er fyrir andann gefið að mæla af speki, öðrum að mæla af þekkingu í krafti sama anda.

    12:9 Hinn sami andi veitir einum trú, öðrum lækningagáfu

    12:10 og öðrum kraft til að framkvæma undur. Einn fær spádómsgáfu, annar hæfileika að greina anda, einn að tala tungum og annar að útleggja tungutal.

    12:11 En öllu þessu kemur til leiðar eini og sami andinn, og hann útbýtir hverjum einum eftir vild sinni.

    12:12 Því að eins og líkaminn er einn og hefur marga limi, en allir limir líkamans, þótt margir séu, eru einn líkami, þannig er og Kristur.

    12:13 Í einum anda vorum vér allir skírðir til að vera einn líkami, hvort sem vér erum Gyðingar eða Grikkir, þrælar eða frjálsir, og allir fengum vér einn anda að drekka.

    12:14 Því að líkaminn er ekki einn limur, heldur margir.

    12:15 Ef fóturinn segði: ,,Fyrst ég er ekki hönd, heyri ég ekki líkamanum til,`` þá er hann ekki fyrir það líkamanum óháður.

    12:16 Og ef eyrað segði: ,,Fyrst ég er ekki auga, heyri ég ekki líkamanum til,`` þá er það ekki þar fyrir líkamanum óháð.

    12:17 Ef allur líkaminn væri auga, hvar væri þá heyrnin? Ef hann væri allur heyrn, hvar væri þá ilmanin?

    12:18 En nú hefur Guð sett hvern einstakan lim á líkamann eins og honum þóknaðist.

    12:19 Ef allir limirnir væru einn limur, hvar væri þá líkaminn?

    12:20 En nú eru limirnir margir, en líkaminn einn.

    12:21 Augað getur ekki sagt við höndina: ,,Ég þarfnast þín ekki!`` né heldur höfuðið við fæturna: ,,Ég þarfnast ykkar ekki!``

    12:22 Nei, miklu fremur eru þeir limir á líkamanum nauðsynlegir, sem virðast vera í veikbyggðara lagi.

    12:23 Og þeim, sem oss virðast vera í óvirðulegra lagi á líkamanum, þeim veitum vér því meiri sæmd, og þeim, sem vér blygðumst vor fyrir, sýnum vér því meiri blygðunarsemi.

    12:24 Þess þarfnast hinir ásjálegu limir vorir ekki. En Guð setti líkamann svo saman, að hann gaf þeim, sem síðri var, því meiri sæmd,

    12:25 til þess að ekki yrði ágreiningur í líkamanum, heldur skyldu limirnir bera sameiginlega umhyggju hver fyrir öðrum.

    12:26 Og hvort heldur einn limur þjáist, þá þjást allir limirnir með honum, eða einn limur er í hávegum hafður, samgleðjast allir limirnir honum.

    12:27 Þér eruð líkami Krists og limir hans hver um sig.

    12:28 Guð hefur sett nokkra í kirkjunni, fyrst postula, í öðru lagi spámenn, í þriðja lagi fræðara, sumum hefur hann veitt gáfu að gjöra kraftaverk, lækna, vinna líknarstörf, stjórna og tala tungum.

    12:29 Hvort eru allir postular? Hvort eru allir spámenn? Hvort eru allir fræðarar? Hvort eru allir kraftaverkamenn?

    12:30 Hvort hafa allir hlotið lækningagáfu? Hvort tala allir tungum? Hvort útlista allir tungutal?

    12:31 Nei, sækist heldur eftir náðargáfunum, þeim hinum meiri. Og nú bendi ég yður á enn þá miklu ágætari leið.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine