Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - 2SAMUEL 22

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    22:1 Davíð flutti Drottni orð þessa ljóðs, þá er Drottinn frelsaði hann af hendi allra óvina hans og af hendi Sáls.

    22:2 Hann mælti: Drottinn er bjarg mitt og vígi, hann er sá sem hjálpar mér.

    22:3 Guð minn er hellubjarg mitt, þar sem ég leita hælis, skjöldur minn og horn hjálpræðis míns, háborg mín og hæli, frelsari minn, sem frelsar mig frá ofbeldi.

    22:4 Lofaður sé Drottinn, hrópa ég, og ég frelsast frá óvinum mínum.

    22:5 Brimöldur dauðans umkringdu mig, elfur glötunarinnar skelfdu mig,

    22:6 snörur Heljar luktu um mig, möskvar dauðans féllu yfir mig.

    22:7 Í angist minni kallaði ég á Drottin, og til Guðs míns hrópaði ég. Í helgidómi sínum heyrði hann raust mína, óp mitt barst til eyrna honum.

    22:8 Jörðin bifaðist og nötraði, undirstöður fjallanna skulfu, þær bifuðust, því að hann var reiður.

    22:9 Reykur gekk fram úr nösum hans og eyðandi eldur af munni hans, glóðir brunnu út frá honum.

    22:10 Hann sveigði himininn og steig niður, og skýsorti var undir fótum hans.

    22:11 Hann steig á bak kerúb og flaug af stað og sveif á vængjum vindarins.

    22:12 Hann gjörði myrkrið í kringum sig að skýli, regnsortann og skýþykknið.

    22:13 Frá ljómanum fyrir honum flugu hagl og eldglæringar.

    22:14 Drottinn þrumaði af himni, hinn hæsti lét raust sína gjalla.

    22:15 Hann skaut örvum sínum og tvístraði þeim, lét eldingarnar leiftra og hræddi þá.

    22:16 Þá sá í mararbotn, og undirstöður jarðarinnar urðu berar fyrir ógnum Drottins, fyrir andgustinum úr nösum hans.

    22:17 Hann seildist niður af hæðum og greip mig, dró mig upp úr hinum miklu vötnum.

    22:18 Hann frelsaði mig frá hinum sterku óvinum mínum, frá fjandmönnum mínum, er voru mér yfirsterkari.

    22:19 Þeir réðust á mig á mínum óheilladegi, en Drottinn var mín stoð.

    22:20 Hann leiddi mig út á víðlendi, hann frelsaði mig, af því að hann hafði þóknun á mér.

    22:21 Drottinn fór með mig eftir réttlæti mínu, eftir hreinleik handa minna galt hann mér,

    22:22 því að ég hefi varðveitt vegu Drottins og hefi ekki reynst ótrúr Guði mínum.

    22:23 Allar skipanir hans hefi ég fyrir augum og frá boðorðum hans hefi ég ekki vikið.

    22:24 Ég var lýtalaus fyrir honum og gætti mín við misgjörðum.

    22:25 Drottinn galt mér eftir réttlæti mínu, eftir hreinleik handa minna fyrir augliti hans.

    22:26 Gagnvart ástríkum ert þú ástríkur, gagnvart ráðvöndum ráðvandur,

    22:27 gagnvart hreinum hreinn, en gagnvart rangsnúnum ert þú afundinn.

    22:28 Þú hjálpar þjáðum lýð, en gjörir alla hrokafulla niðurlúta.

    22:29 Já, þú ert lampi minn, Drottinn, Guð minn lýsir mér í myrkrinu.

    22:30 Fyrir þína hjálp hleyp ég yfir virkisgrafir, fyrir hjálp Guðs míns stekk ég yfir borgarveggi.

    22:31 Vegur Guðs er lýtalaus, orð Drottins er skírt. Skjöldur er hann öllum þeim, sem leita hælis hjá honum.

    22:32 Því að hver er Guð, nema Drottinn, og hver er hellubjarg, utan vor Guð?

    22:33 Sá Guð, sem gyrðir mig styrkleika og gjörir veg minn sléttan.

    22:34 Hann gjörir fætur mína sem hindanna og veitir mér fótfestu á hæðunum.

    22:35 Hann æfir hendur mínar til hernaðar, svo að armar mínir benda eirbogann.

    22:36 Þú gafst mér skjöld hjálpræðis þíns, og lítillæti þitt gjörði mig mikinn.

    22:37 Þú rýmdir til fyrir skrefum mínum og ökklar mínir riðuðu ekki.

    22:38 Ég elti óvini mína og náði þeim, og sneri ekki aftur fyrr en ég hafði gjöreytt þeim.

    22:39 Ég gjöreyddi þeim og molaði þá sundur, svo að þeir risu ekki upp framar og hnigu undir fætur mér.

    22:40 Þú gyrtir mig styrkleika til ófriðarins, beygðir fjendur mína undir mig.

    22:41 Þú lést mig sjá bak óvina minna, þeim eyddi ég, sem hata mig.

    22:42 Þeir hrópuðu, en enginn kom til hjálpar, þeir hrópuðu til Drottins, en hann svaraði þeim ekki.

    22:43 Ég muldi þá sem mold á jörð, tróð þá fótum sem skarn á strætum.

    22:44 Þú frelsaðir mig úr fólkorustum, gjörðir mig að höfðingja þjóðanna. Lýður, sem ég þekkti ekki, þjónar mér.

    22:45 Framandi menn smjaðra fyrir mér, óðara en þeir heyra mín getið, hlýða þeir mér.

    22:46 Framandi menn dragast upp og koma skjálfandi fram úr fylgsnum sínum.

    22:47 Lifi Drottinn, lofað sé mitt bjarg, og hátt upp hafinn sé Guð hjálpræðis míns!

    22:48 Þú Guð, sem veittir mér hefndir og braust þjóðir undir mig,

    22:49 sem hreifst mig úr höndum óvina minna og hófst mig yfir mótstöðumenn mína. Frá ójafnaðarmönnum frelsaðir þú mig.

    22:50 Fyrir því vil ég vegsama þig, Drottinn, meðal þjóðanna og lofsyngja þínu nafni.

    22:51 Hann veitir konungi sínum mikla hjálp og auðsýnir miskunn sínum smurða, Davíð og niðjum hans að eilífu.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine