Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - AMOS 8

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    8:1 Drottinn Guð lét þessa sýn bera fyrir mig: Ég sá körfu með sumarávöxtum.

    8:2 Þá sagði hann: ,,Hvað sér þú, Amos?`` Ég svaraði: ,,Körfu með sumarávöxtum.`` Þá sagði Drottinn við mig: ,,Endirinn er kominn yfir lýð minn Ísrael, ég vil eigi lengur umbera hann.

    8:3 Og musterissöngmeyjarnar skulu kveina á þeim degi _ segir Drottinn Guð. _ Líkin eru mörg. Alls staðar fleygja menn þeim út í kyrrþey!``

    8:4 Heyrið þetta, þér sem sundur merjið hina fátæku og ætlið að gjöra út af við alla aumingja í landinu, _

    8:5 sem segið: ,,Hvenær mun tunglkomuhátíðin líða, svo að vér megum selja korn, og hvíldardagurinn, svo að vér megum opna kornhlöðurnar?`` _ sem minnkið mælinn og hækkið verðið og falsið svikavogina,

    8:6 og kaupið hina snauðu fyrir silfur og fátæklinginn fyrir eina ilskó, _ sem segið: ,,Vér seljum þeim aðeins úrganginn úr korninu.``

    8:7 Drottinn hefir svarið við vegsemd Jakobs: Aldrei skal ég gleyma öllu því, er þeir hafa gjört.

    8:8 Hlaut ekki jörðin að nötra af slíku og allir þeir, sem þar búa, að verða sorgbitnir, svo að hún hófst upp alls staðar eins og Níl-fljótið og lækkaði eins og fljótið á Egyptalandi?

    8:9 Á þeim degi, _ segir Drottinn Guð _ vil ég láta sólina ganga til viðar um miðjan dag og senda myrkur yfir landið á ljósum degi.

    8:10 Ég vil snúa hátíðum yðar í sorg og öllum ljóðum yðar í harmkvæði, klæða allar mjaðmir í sorgarbúning og gjöra öll höfuð sköllótt. Ég læt það verða eins og sorg eftir einkason og endalok þess sem beiskan dag.

    8:11 Sjá, þeir dagar munu koma, _ segir Drottinn Guð, _ að ég mun senda hungur inn í landið, ekki hungur eftir brauði né þorsta eftir vatni, heldur eftir því að heyra orð Drottins,

    8:12 svo að menn skulu reika frá einu hafinu til annars og renna frá norðri til austurs til þess að leita eftir orði Drottins. En þeir skulu ekki finna það.

    8:13 Á þeim degi skulu fríðar meyjar og æskumenn vanmegnast af þorsta.

    8:14 Þeir er sverja við vansæmd Samaríu og segja: ,,Svo sannarlega sem Guð þinn lifir, Dan!`` og: ,,Svo sannarlega sem Guð þinn lifir, Beerseba!`` _ þeir skulu falla og ekki framar á fætur rísa.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine