Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - AMOS 9

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    9:1 Ég sá Drottin standa við altarið, og hann sagði: Slá þú á súluhöfuðið, svo að þröskuldarnir skjálfi. Brjót þá sundur og kasta í höfuð þeim öllum. Og síðustu leifar þeirra vil ég deyða með sverði, enginn þeirra skal komast undan á flótta og enginn þeirra bjargast.

    9:2 Þótt þeir brjótist niður í undirheima, þá skal hönd mín sækja þá þangað, þótt þeir stígi upp til himins, þá skal ég steypa þeim ofan þaðan.

    9:3 Þótt þeir feli sig á Karmeltindi, þá skal ég leita þá þar uppi og sækja þá þangað, og þótt þeir vilji leynast fyrir augum mínum á mararbotni, skal ég þar bjóða höggorminum að bíta þá.

    9:4 Og þótt þeir fari á undan óvinum sínum í útlegð, skal ég þar bjóða sverðinu að deyða þá, og ég vil beina augum mínum á þá, þeim til óhamingju, en ekki til hamingju.

    9:5 Drottinn, Guð allsherjar, hann sem snertir jörðina, svo að hún riðar, og allir þeir, sem á henni búa, verða sorgbitnir, svo að hún hefst upp alls staðar eins og Níl-fljótið og lækkar eins og fljótið á Egyptalandi,

    9:6 hann sem reist hefir á himnum sali sína og grundvallað hvelfing sína á jörðinni, hann sem kallaði á vötn sjávarins og jós þeim yfir jörðina _ Drottinn er nafn hans.

    9:7 Eruð þér, Ísraelsmenn, mér mætari en Blálendingar? _ segir Drottinn. Hefi ég eigi flutt Ísrael af Egyptalandi og Filista frá Kaftór og Sýrlendinga frá Kír?

    9:8 Sjá, auga Drottins Guðs hvílir á þessu glæpafulla konungsríki. Ég skal afmá það af jörðinni, _ og þó vil ég ekki með öllu afmá Jakobs niðja _ segir Drottinn.

    9:9 Nei, ég skal svo um bjóða, að Ísraels hús verði hrist út á meðal allra þjóða, eins og korn er hrist í sáldi, án þess að nokkur steinvala falli til jarðar.

    9:10 Allir syndarar þjóðar minnar skulu falla fyrir sverði, þeir sem segja: ,,Ógæfan mun eigi ná oss né yfir oss koma!``

    9:11 Á þeim degi mun ég endurreisa hina föllnu tjaldbúð Davíðs. Ég mun hlaða upp í veggskörðin og reisa hana úr rústum og gjöra hana upp aftur, eins og hún var fyrr meir,

    9:12 til þess að þeir nái undir sig leifum Edóms og öllum þeim þjóðum, sem nafn mitt hefir verið nefnt yfir _ segir Drottinn, sá er þessu mun til vegar koma.

    9:13 Sjá, þeir dagar munu koma, _ segir Drottinn _ að erjandinn skal ná kornskurðarmanninum og víntroðslumaðurinn sáðmanninum. Þá munu fjöllin löðra í vínberjalegi og hálsarnir verða í einu flóði.

    9:14 Þá mun ég snúa við högum lýðs míns Ísraels. Þeir munu byggja upp hinar eyddu borgir og búa í þeim, planta víngarða og drekka vín úr þeim, búa til aldingarða og eta ávöxtu þeirra.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine