Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - EXODUS 1

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    1:1 Þessi eru nöfn Ísraels sona, sem komu til Egyptalands með Jakob, hver með sitt heimilisfólk:

    1:2 Rúben, Símeon, Leví og Júda,

    1:3 Íssakar, Sebúlon og Benjamín,

    1:4 Dan og Naftalí, Gað og Asser.

    1:5 Alls voru niðjar Jakobs sjötíu manns, og Jósef var fyrir í Egyptalandi.

    1:6 Og Jósef dó og allir bræður hans og öll sú kynslóð.

    1:7 Og Ísraelsmenn voru frjósamir, jukust, margfölduðust og fjölgaði stórum, svo að landið varð fullt af þeim.

    1:8 Þá hófst til ríkis í Egyptalandi nýr konungur, sem engin deili vissi á Jósef.

    1:9 Hann sagði við þjóð sína: ,,Sjá, þjóð Ísraelsmanna er fjölmennari og aflmeiri en vér.

    1:10 Látum oss fara kænlega að við hana, ella kynni henni að fjölga um of, og ef til ófriðar kæmi, kynni hún jafnvel að ganga í lið með óvinum vorum og berjast móti oss og fara síðan af landi burt.``

    1:11 Og þeir settu verkstjóra yfir hana til þess að þjá hana með þrælavinnu, og hún byggði vistaborgir handa Faraó, Pítóm og Raamses.

    1:12 En því meir sem þeir þjáðu hana, því meir fjölgaði henni og breiddist út, svo að þeir tóku að óttast Ísraelsmenn.

    1:13 Og Egyptar þrælkuðu Ísraelsmenn vægðarlaust

    1:14 og gjörðu þeim lífið leitt með þungri þrælavinnu við leireltu og tigulsteinagjörð og með alls konar akurvinnu, með allri þeirri vinnu, er þeir vægðarlaust þrælkuðu þá með.

    1:15 En Egyptalandskonungur mælti til hinna hebresku ljósmæðra _ hét önnur Sifra, en hin Púa:

    1:16 ,,Þegar þið sitjið yfir hebreskum konum,`` mælti hann, ,,þá lítið á burðarsetið. Sé barnið sveinbarn, þá deyðið það, en sé það meybarn, þá má það lifa.``

    1:17 En ljósmæðurnar óttuðust Guð og gjörðu eigi það, sem Egyptalandskonungur bauð þeim, heldur létu sveinbörnin lifa.

    1:18 Þá lét Egyptalandskonungur kalla ljósmæðurnar og sagði við þær: ,,Hví hafið þér svo gjört, að láta sveinbörnin lifa?``

    1:19 Ljósmæðurnar svöruðu Faraó: ,,Hebreskar konur eru ólíkar egypskum, því að þær eru hraustar. Áður en ljósmóðirin kemur til þeirra, eru þær búnar að fæða.``

    1:20 Og Guð lét ljósmæðrunum vel farnast, og fólkinu fjölgaði og það efldist mjög.

    1:21 Og fyrir þá sök, að ljósmæðurnar óttuðust Guð, gaf hann þeim fjölda niðja.

    1:22 Þá bauð Faraó öllum lýð sínum og sagði: ,,Kastið í ána öllum þeim sveinbörnum, sem fæðast meðal Hebrea, en öll meybörn mega lífi halda.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine