Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - EXODUS 2

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    2:1 Maður nokkur af Leví ætt gekk að eiga dóttur Leví.

    2:2 Og konan varð þunguð og fæddi son. Og er hún sá að sveinninn var fríður, þá leyndi hún honum í þrjá mánuði.

    2:3 En er hún mátti eigi leyna honum lengur, tók hún handa honum örk af reyr, bræddi hana með jarðlími og biki, lagði sveininn í hana og lét örkina út í sefið hjá árbakkanum.

    2:4 En systir hans stóð þar álengdar til að vita, hvað um hann yrði.

    2:5 Þá gekk dóttir Faraós ofan að ánni til að lauga sig, og gengu þjónustumeyjar hennar eftir árbakkanum. Hún leit örkina í sefinu og sendi þernu sína að sækja hana.

    2:6 En er hún lauk upp örkinni, sá hún barnið, og sjá, það var sveinbarn og var að gráta. Og hún kenndi í brjósti um það og sagði: ,,Þetta er eitt af börnum Hebrea.``

    2:7 Þá sagði systir sveinsins við dóttur Faraós: ,,Á ég að fara og sækja fyrir þig barnfóstru, einhverja hebreska konu, að hún hafi sveininn á brjósti fyrir þig?``

    2:8 Og dóttir Faraós svaraði henni: ,,Já, far þú.`` En mærin fór og sótti móður sveinsins.

    2:9 Og dóttir Faraós sagði við hana: ,,Tak svein þennan með þér og haf hann á brjósti fyrir mig, og skal ég launa þér fyrir.`` Tók konan þá sveininn og hafði hann á brjósti.

    2:10 En er sveinninn var vaxinn, fór hún með hann til dóttur Faraós. Tók hún hann í sonar stað og nefndi hann Móse, því að hún sagði: ,,Ég hefi dregið hann upp úr vatninu.``

    2:11 Um þær mundir bar svo við, þegar Móse var orðinn fulltíða maður, að hann fór á fund ættbræðra sinna og sá þrældóm þeirra. Sá hann þá egypskan mann ljósta hebreskan mann, einn af ættbræðrum hans.

    2:12 Hann skimaði þá í allar áttir, og er hann sá, að þar var enginn, drap hann Egyptann og huldi hann í sandinum.

    2:13 Daginn eftir gekk hann út og sá tvo Hebrea vera að þrátta sín á milli. Þá mælti hann við þann, sem á röngu hafði að standa: ,,Hví slær þú náunga þinn?``

    2:14 En hann sagði: ,,Hver skipaði þig höfðingja og dómara yfir okkur? Er þér í hug að drepa mig, eins og þú drapst Egyptann?`` Þá varð Móse hræddur og hugsaði með sér: ,,Það er þá orðið uppvíst!``

    2:15 Er Faraó frétti þennan atburð, leitaði hann eftir að drepa Móse, en Móse flýði undan Faraó og tók sér bústað í Midíanslandi og settist að hjá vatnsbólinu.

    2:16 Presturinn í Midíanslandi átti sjö dætur. Þær komu þangað, jusu vatn og fylltu þrórnar til að brynna fénaði föður síns.

    2:17 Þá komu að hjarðmenn og bægðu þeim frá. En Móse tók sig til og hjálpaði þeim og brynnti fénaði þeirra.

    2:18 Og er þær komu heim til Regúels föður síns, mælti hann: ,,Hví komið þér svo snemma heim í dag?``

    2:19 Þær svöruðu: ,,Egypskur maður hjálpaði oss móti hjarðmönnunum, jós líka vatnið upp fyrir oss og brynnti fénaðinum.``

    2:20 Hann sagði þá við dætur sínar: ,,Hvar er hann þá? Hvers vegna skilduð þér manninn eftir? Bjóðið honum heim, að hann neyti matar.``

    2:21 Móse lét sér vel líka að vera hjá þessum manni, og hann gifti Móse Sippóru dóttur sína.

    2:22 Hún ól son, og hann nefndi hann Gersóm, því að hann sagði: ,,Gestur er ég í ókunnu landi.``

    2:23 Löngum tíma eftir þetta dó Egyptalandskonungur. En Ísraelsmenn andvörpuðu undir ánauðinni og kveinuðu, og ánauðarkvein þeirra sté upp til Guðs.

    2:24 Og Guð heyrði andvarpanir þeirra og minntist sáttmála síns við Abraham, Ísak og Jakob.

    2:25 Og Guð leit til Ísraelsmanna og kenndist við þá.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine