Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - GENESIS 15

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    15:1 Eftir þessa atburði kom orð Drottins til Abrams í sýn: ,,Óttast þú ekki, Abram, ég er þinn skjöldur, laun þín munu mjög mikil verða.``

    15:2 Og Abram mælti: ,,Drottinn Guð, hvað ætlar þú að gefa mér? Ég fer héðan barnlaus, og Elíeser frá Damaskus verður erfingi húss míns.``

    15:3 Og Abram mælti: ,,Sjá, mér hefir þú ekkert afkvæmi gefið, og húskarl minn mun erfa mig.``

    15:4 Og sjá, orð Drottins kom til hans: ,,Ekki skal hann erfa þig, heldur sá, sem af þér mun getinn verða, hann mun erfa þig.``

    15:5 Og hann leiddi hann út og mælti: ,,Lít þú upp til himins og tel þú stjörnurnar, ef þú getur talið þær.`` Og hann sagði við hann: ,,Svo margir skulu niðjar þínir verða.``

    15:6 Og Abram trúði Drottni, og hann reiknaði honum það til réttlætis.

    15:7 Þá sagði hann við hann: ,,Ég er Drottinn, sem leiddi þig út frá Úr í Kaldeu til þess að gefa þér þetta land til eignar.``

    15:8 Og Abram mælti: ,,Drottinn Guð, hvað skal ég hafa til marks um, að ég muni eignast það?``

    15:9 Og hann mælti við hann: ,,Fær mér þrevetra kvígu, þrevetra geit, þrevetran hrút, turtildúfu og unga dúfu.``

    15:10 Og hann færði honum öll þessi dýr og hlutaði þau sundur í miðju og lagði hvern hlutinn gegnt öðrum. En fuglana hlutaði hann ekki sundur.

    15:11 Og hræfuglar flugu að ætinu, en Abram fældi þá burt.

    15:12 Er sól var að renna, leið þungur svefnhöfgi á Abram, og sjá: felmti og miklu myrkri sló yfir hann.

    15:13 Þá sagði hann við Abram: ,,Vit það fyrir víst, að niðjar þínir munu lifa sem útlendingar í landi, sem þeir eiga ekki, og þeir munu þjóna þeim, og þeir þjá þá í fjögur hundruð ár.

    15:14 En þá þjóð, sem þeir munu þjóna, mun ég dæma, og síðar munu þeir þaðan fara með mikinn fjárhlut.

    15:15 En þú skalt fara í friði til feðra þinna, þú skalt verða jarðaður í góðri elli.

    15:16 Hinn fjórði ættliður þeirra mun koma hingað aftur, því að enn hafa Amorítar eigi fyllt mæli synda sinna.``

    15:17 En er sól var runnin og myrkt var orðið, kom reykur sem úr ofni og eldslogi, er leið fram á milli þessara fórnarstykkja.

    15:18 Á þeim degi gjörði Drottinn sáttmála við Abram og mælti: ,,Þínu afkvæmi gef ég þetta land, frá Egyptalandsánni til árinnar miklu, árinnar Efrat:

    15:19 land Keníta, Kenissíta, Kadmóníta,

    15:20 Hetíta, Peresíta, Refaíta,

    15:21 Amoríta, Kanaaníta, Gírgasíta og Jebúsíta.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine