Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - GENESIS 16

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    16:1 Saraí kona Abrams ól honum ekki börn. En hún hafði egypska ambátt, sem hét Hagar.

    16:2 Og Saraí sagði við Abram: ,,Heyrðu, Drottinn hefir varnað mér barngetnaðar. Gakk því inn til ambáttar minnar, vera má að hún afli mér afkvæmis.`` Og Abram hlýddi orðum Saraí.

    16:3 Saraí, kona Abrams, tók Hagar hina egypsku, ambátt sína, er Abram hafði búið tíu ár í Kanaanlandi, og gaf manni sínum Abram hana fyrir konu.

    16:4 Og hann gekk inn til Hagar, og hún varð þunguð. En er hún vissi, að hún var með barni, fyrirleit hún húsmóður sína.

    16:5 Þá sagði Saraí við Abram: ,,Sá óréttur, sem ég verð að þola, bitni á þér! Ég hefi gefið ambátt mína þér í faðm, en er hún nú veit, að hún er með barni, fyrirlítur hún mig. Drottinn dæmi milli mín og þín!``

    16:6 En Abram sagði við Saraí: ,,Sjá, ambátt þín er á þínu valdi. Gjör þú við hana sem þér gott þykir.`` Þá þjáði Saraí hana, svo að hún flýði í burtu frá henni.

    16:7 Þá fann engill Drottins hana hjá vatnslind í eyðimörkinni, hjá lindinni á veginum til Súr.

    16:8 Og hann mælti: ,,Hagar, ambátt Saraí, hvaðan kemur þú og hvert ætlar þú að fara?`` Hún svaraði: ,,Ég er á flótta frá Saraí, húsmóður minni.``

    16:9 Og engill Drottins sagði við hana: ,,Hverf þú heim aftur til húsmóður þinnar og gef þig undir hennar vald.``

    16:10 Engill Drottins sagði við hana: ,,Ég mun margfalda afkvæmi þitt, svo að það verði eigi talið fyrir fjölda sakir.``

    16:11 Engill Drottins sagði við hana: ,,Sjá, þú ert þunguð og munt son fæða. Hans nafn skalt þú kalla Ísmael, því að Drottinn hefir heyrt kveinstafi þína.

    16:12 Hann mun verða maður ólmur sem villiasni, hönd hans mun vera uppi á móti hverjum manni og hvers manns hönd uppi á móti honum, og hann mun búa andspænis öllum bræðrum sínum.``

    16:13 Og hún nefndi Drottin, sem við hana talaði, ,,Þú ert Guð, sem sér.`` Því að hún sagði: ,,Ætli ég hafi einnig hér horft á eftir honum, sem hefir séð mig?``

    16:14 Þess vegna heitir brunnurinn Beer-lahaj-róí, en hann er á milli Kades og Bered.

    16:15 Hagar ól Abram son, og Abram nefndi son sinn, sem Hagar ól honum, Ísmael.

    16:16 En Abram var áttatíu og sex ára gamall, þegar Hagar ól honum Ísmael.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine