Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - GENESIS 32

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    32:1 Jakob fór leiðar sinnar. Mættu honum þá englar Guðs.

    32:2 Og er Jakob sá þá, mælti hann: ,,Þetta eru herbúðir Guðs.`` Og hann nefndi þennan stað Mahanaím.

    32:3 Jakob gjörði sendimenn á undan sér til Esaú bróður síns til Seír-lands, Edómhéraðs.

    32:4 Og hann bauð þeim og sagði: ,,Segið svo herra mínum Esaú: ,Svo segir þjónn þinn Jakob: Ég hefi dvalið hjá Laban og verið þar allt til þessa.

    32:5 Og ég hefi eignast uxa, asna og sauði, þræla og ambáttir, og sendi ég nú til herra míns að láta hann vita það, svo að ég megi finna náð í augum þínum.```

    32:6 Sendimennirnir komu aftur til Jakobs og sögðu: ,,Vér komum til Esaú bróður þíns. Hann er sjálfur á leiðinni á móti þér og fjögur hundruð manns með honum.``

    32:7 Þá varð Jakob mjög hræddur og kvíðafullur. Og hann skipti mönnunum, sem með honum voru, og sauðunum, nautunum og úlföldunum í tvo flokka.

    32:8 Og hann hugsaði: ,,Þó að Esaú ráðist á annan flokkinn og strádrepi hann, þá getur samt hinn flokkurinn komist undan.``

    32:9 Og Jakob sagði: ,,Guð Abrahams föður míns og Guð Ísaks föður míns, Drottinn, þú sem sagðir við mig: ,Hverf heim aftur til lands þíns og til ættfólks þíns, og ég mun gjöra vel við þig,` _

    32:10 ómaklegur er ég allrar þeirrar miskunnar og allrar þeirrar trúfesti, sem þú hefir auðsýnt þjóni þínum. Því að með stafinn minn einn fór ég þá yfir Jórdan, en nú á ég yfir tveim flokkum að ráða.

    32:11 Æ, frelsa mig undan valdi bróður míns, undan valdi Esaú, því að ég óttast hann, að hann komi og höggvi oss niður sem hráviði.

    32:12 Og þú hefir sjálfur sagt: ,Ég mun vissulega gjöra vel við þig og gjöra niðja þína sem sand á sjávarströndu, er eigi verður talinn fyrir fjölda sakir.```

    32:13 Og hann var þar þá nótt. Og hann tók gjöf handa Esaú bróður sínum af því, sem hann hafði eignast:

    32:14 tvö hundruð geitur og tuttugu geithafra, tvö hundruð ásauðar og tuttugu hrúta,

    32:15 þrjátíu úlfaldahryssur með folöldum, fjörutíu kýr og tíu griðunga, tuttugu ösnur og tíu ösnufola.

    32:16 Og hann fékk þetta í hendur þjónum sínum, hverja hjörð út af fyrir sig, og mælti við þjóna sína: ,,Farið á undan mér og látið vera bil á milli hjarðanna.``

    32:17 Og þeim, sem fyrstur fór, bauð hann á þessa leið: ,,Þegar Esaú bróðir minn mætir þér og spyr þig og segir: ,Hvers maður ert þú og hvert ætlar þú að fara og hver á þetta, sem þú rekur á undan þér?`

    32:18 þá skaltu segja: ,Þjónn þinn Jakob á það. Það er gjöf, sem hann sendir herra mínum Esaú. Og sjá, hann er sjálfur hér á eftir oss.```

    32:19 Á sömu leið bauð hann hinum öðrum og þriðja og öllum þeim, sem hjarðirnar ráku, og mælti: ,,Þannig skuluð þér tala við Esaú, þegar þér hittið hann.

    32:20 Og þér skuluð einnig segja: ,Sjá, þjónn þinn Jakob kemur sjálfur á eftir oss.``` Því að hann hugsaði: ,,Ég ætla að blíðka hann með gjöfinni, sem fer á undan mér. Því næst vil ég sjá hann. Vera má, að hann taki mér þá blíðlega.``

    32:21 Þannig fór gjöfin á undan honum, en sjálfur var hann þessa nótt í herbúðunum.

    32:22 Og Jakob lagði af stað um nóttina og tók báðar konur sínar og báðar ambáttir sínar og ellefu sonu sína og fór yfir Jabbok á vaðinu.

    32:23 Og hann tók þau og fór með þau yfir ána. Og hann fór yfir um með allt, sem hann átti.

    32:24 Jakob varð einn eftir, og maður nokkur glímdi við hann, uns dagsbrún rann upp.

    32:25 Og er hann sá, að hann gat ekki fellt hann, laust hann hann á mjöðmina, svo að Jakob gekk úr augnakörlunum, er hann glímdi við hann.

    32:26 Þá mælti hinn: ,,Slepptu mér, því að nú rennur upp dagsbrún.`` En hann svaraði: ,,Ég sleppi þér ekki, nema þú blessir mig.``

    32:27 Þá sagði hann við hann: ,,Hvað heitir þú?`` Hann svaraði: ,,Jakob.``

    32:28 Þá mælti hann: ,,Eigi skalt þú lengur Jakob heita, heldur Ísrael, því að þú hefir glímt við Guð og menn og fengið sigur.``

    32:29 Og Jakob spurði hann og mælti: ,,Seg mér heiti þitt.`` En hann svaraði: ,,Hvers vegna spyr þú mig að heiti?`` Og hann blessaði hann þar.

    32:30 Og Jakob nefndi þennan stað Peníel, ,,því að ég hefi,`` kvað hann, ,,séð Guð augliti til auglitis og þó haldið lífi.``

    32:31 Og er hann fór frá Penúel, rann sólin upp. Var hann þá haltur í mjöðminni.

    32:32 Fyrir því eta Ísraelsmenn allt til þessa dags ekki sinina, sem er ofan á augnakarlinum, því að hann hitti mjöðm Jakobs þar sem sinin er undir.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine