Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - GENESIS 33

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    33:1 Jakob hóf upp augu sín og sá Esaú koma og með honum fjögur hundruð manns. Skipti hann þá börnunum niður á Leu og Rakel og báðar ambáttirnar.

    33:2 Og hann lét ambáttirnar og þeirra börn vera fremst, þá Leu og hennar börn, og Rakel og Jósef aftast.

    33:3 En sjálfur gekk hann á undan þeim og laut sjö sinnum til jarðar, uns hann kom fast að bróður sínum.

    33:4 Þá hljóp Esaú á móti honum og faðmaði hann, lagði hendur um háls honum og kyssti hann, og þeir grétu.

    33:5 Og Esaú leit upp og sá konurnar og börnin og mælti: ,,Hvernig stendur á þessu fólki, sem með þér er?`` Og hann svaraði: ,,Það eru börnin, sem Guð hefir af náð sinni gefið þjóni þínum.``

    33:6 Þá gengu fram ambáttirnar og börn þeirra og hneigðu sig.

    33:7 Þá gekk og Lea fram og börn hennar og hneigðu sig, og síðan gengu Jósef og Rakel fram og hneigðu sig.

    33:8 Esaú mælti: ,,Hvað skal allur þessi hópur, sem ég mætti?`` Jakob svaraði: ,,Að ég megi finna náð í augum herra míns.``

    33:9 Þá mælti Esaú: ,,Ég á nóg. Eig þú þitt, bróðir minn!``

    33:10 En Jakob sagði: ,,Eigi svo. Hafi ég fundið náð í augum þínum, þá þigg þú gjöfina af mér, því að þegar ég sá auglit þitt, var sem ég sæi Guðs auglit, og þú tókst náðarsamlega á móti mér.

    33:11 Ég bið þig, að þú þiggir gjöf mína, sem þér var færð, því að Guð hefir verið mér náðugur og ég hefi allsnægtir.`` Og hann lagði að honum, svo að hann þá gjöfina.

    33:12 Þá mælti Esaú: ,,Tökum okkur nú upp og höldum áfram, og skal ég fara á undan þér.``

    33:13 En hann svaraði honum: ,,Þú sér, herra minn, að börnin eru þróttlítil og að í ferðinni eru lambær og kýr með kálfum, og ræki ég þær of hart einn dag, þá mundi öll hjörðin drepast.

    33:14 Fari herra minn á undan þjóni sínum, en ég mun halda á eftir í hægðum mínum, eins og fénaðurinn getur farið, sem ég rek, og eins og börnin geta farið, uns ég kem til herra míns í Seír.``

    33:15 Þá mælti Esaú: ,,Þá vil ég þó láta eftir hjá þér nokkra af þeim mönnum, sem með mér eru.`` Hann svaraði: ,,Hver þörf er á því? Lát mig aðeins finna náð fyrir augum herra míns.``

    33:16 Síðan fór Esaú þann sama dag leiðar sinnar heim aftur til Seír.

    33:17 Og Jakob hélt áfram til Súkkót og byggði sér hús, og handa fénaði sínum gjörði hann laufskála. Fyrir því heitir staðurinn Súkkót.

    33:18 Jakob kom heill á hófi til Síkemborgar, sem er í Kanaanlandi, er hann kom frá Mesópótamíu, og hann sló tjöldum fyrir utan borgina.

    33:19 Hann keypti landspilduna, sem hann hafði tjaldað á, af sonum Hemors, föður Síkems, fyrir hundrað silfurpeninga.

    33:20 Og hann reisti þar altari og kallaði það El-elóhe-Ísrael.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine