Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JAMES 2

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    2:1 Bræður mínir, farið ekki í manngreinarálit, þér sem trúið á dýrðardrottin vorn Jesú Krist.

    2:2 Nú kemur maður inn í samkundu yðar með gullhring á hendi og í skartlegum klæðum, og jafnframt kemur inn fátækur maður í óhreinum fötum,

    2:3 ef öll athygli yðar beinist að þeim, sem skartklæðin ber, og þér segið: ,,Settu þig hérna í gott sæti!`` en segið við fátæka manninn: ,,Stattu þarna, eða settu þig á gólfið við fótskör mína!``

    2:4 hafið þér þá ekki mismunað mönnum og orðið dómarar með vondum hugsunum?

    2:5 Heyrið, bræður mínir elskaðir! Hefur Guð ekki útvalið þá, sem fátækir eru í augum heimsins, til þess að þeir verði auðugir í trú og erfingjar þess ríkis, er hann hefur heitið þeim, sem elska hann?

    2:6 En þér hafið óvirt hinn fátæka. Eru það þó ekki hinir ríku, sem undiroka yður og draga yður fyrir dómstóla?

    2:7 Eru það ekki þeir, sem lastmæla hinu góða nafni, sem nefnt var yfir yður?

    2:8 Ef þér uppfyllið hið konunglega boðorð Ritningarinnar: ,,Þú skalt elska náunga þinn sem sjálfan þig``, þá gjörið þér vel.

    2:9 En ef þér farið í manngreinarálit, þá drýgið þér synd og lögmálið sannar upp á yður að þér séuð brotamenn.

    2:10 Þótt einhver héldi allt lögmálið, en hrasaði í einu atriði, þá er hann orðinn sekur við öll boðorð þess.

    2:11 Því sá sem sagði: ,,Þú skalt ekki hórdóm drýgja``, hann sagði líka: ,,Þú skalt ekki morð fremja.`` En þó að þú drýgir ekki hór, en fremur morð, þá ertu búinn að brjóta lögmálið.

    2:12 Talið því og breytið eins og þeir, er dæmast eiga eftir lögmáli frelsisins.

    2:13 Því að dómurinn verður miskunnarlaus þeim, sem ekki auðsýndi miskunn, en miskunnsemin gengur sigri hrósandi að dómi.

    2:14 Hvað stoðar það, bræður mínir, þótt einhver segist hafa trú, en hefur eigi verk? Mun trúin geta frelsað hann?

    2:15 Ef bróðir eða systir eru nakin og vantar daglegt viðurværi

    2:16 og einhver yðar segði við þau: ,,Farið í friði, vermið yður og mettið!`` en þér gefið þeim ekki það, sem líkaminn þarfnast, hvað stoðar það?

    2:17 Eins er líka trúin dauð í sjálfri sér, vanti hana verkin.

    2:18 En nú segir einhver: ,,Einn hefur trú, annar verk.`` Sýn mér þá trú þína án verkanna, og ég skal sýna þér trúna af verkum mínum.

    2:19 Þú trúir, að Guð sé einn. Þú gjörir vel. En illu andarnir trúa því líka og skelfast.

    2:20 Fávísi maður! Vilt þú láta þér skiljast, að trúin er ónýt án verkanna?

    2:21 Réttlættist ekki Abraham faðir vor af verkum, er hann lagði son sinn Ísak á altarið?

    2:22 Þú sérð, að trúin var samtaka verkum hans og að trúin fullkomnaðist með verkunum.

    2:23 Og ritningin rættist, sem segir: ,,Abraham trúði Guði, og það var honum til réttlætis reiknað,`` og hann var kallaður Guðs vinur.

    2:24 Þér sjáið, að maðurinn réttlætist af verkum og ekki af trú einni saman.

    2:25 Svo var og um skækjuna Rahab. Réttlættist hún ekki af verkum, er hún tók við sendimönnunum og lét þá fara burt aðra leið?

    2:26 Eins og líkaminn er dauður án anda, eins er og trúin dauð án verka.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine