Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JAMES 3

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    3:1 Verðið eigi margir kennarar, bræður mínir. Þér vitið, að vér munum fá þyngri dóm.

    3:2 Allir hrösum vér margvíslega. Hrasi einhver ekki í orði, þá er hann maður fullkominn, fær um að hafa stjórn á öllum líkama sínum.

    3:3 Ef vér leggjum hestunum beisli í munn, til þess að þeir hlýði oss, þá getum vér stýrt öllum líkama þeirra.

    3:4 Sjá einnig skipin, svo stór sem þau eru og rekin af hörðum vindum. Þeim verður stýrt með mjög litlu stýri, hvert sem stýrimaðurinn vill.

    3:5 Þannig er einnig tungan lítill limur, en lætur mikið yfir sér. Sjá hversu lítill neisti getur kveikt í miklum skógi.

    3:6 Tungan er líka eldur. Tungan er ranglætisheimur meðal lima vorra. Hún flekkar allan líkamann og kveikir í hjóli tilverunnar, en er sjálf tendruð af helvíti.

    3:7 Allar tegundir dýra og fugla, skriðkvikindi og sjávardýr má temja og hafa mennirnir tamið,

    3:8 en tunguna getur enginn maður tamið, þessa óhemju, sem er full af banvænu eitri.

    3:9 Með henni vegsömum vér Drottin vorn og föður og með henni formælum vér mönnum, sem skapaðir eru í líkingu Guðs.

    3:10 Af sama munni gengur fram blessun og bölvun. Þetta má ekki svo vera, bræður mínir.

    3:11 Gefur lindin úr sama uppsprettuauga bæði ferskt og beiskt vatn?

    3:12 Mun fíkjutré, bræður mínir, geta af sér gefið olífur eða vínviður fíkjur? Eigi getur heldur saltur brunnur gefið ferskt vatn.

    3:13 Hver er vitur og skynsamur yðar á meðal? Hann láti með góðri hegðun verk sín lýsa hóglátri speki.

    3:14 En ef þér hafið beiskan ofsa og eigingirni í hjarta yðar, þá stærið yður ekki og ljúgið ekki gegn sannleikanum.

    3:15 Sú speki kemur ekki að ofan, heldur er hún jarðnesk, andlaus, djöfulleg.

    3:16 Því hvar sem ofsi og eigingirni er, þar er óstjórn og hvers kyns böl.

    3:17 En sú speki, sem að ofan er, hún er í fyrsta lagi hrein, því næst friðsöm, ljúfleg, sáttgjörn, full miskunnar og góðra ávaxta, óhlutdræg, hræsnislaus.

    3:18 En ávexti réttlætisins verður sáð í friði þeim til handa, er frið semja.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine