Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 10

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    10:1 Mér býður við lífi mínu, ég ætla því að gefa kveinstöfum mínum lausan tauminn, ætla að tala í sálarkvöl minni.

    10:2 Ég segi við Guð: Sakfell mig ekki! lát mig vita, hvers vegna þú deilir við mig.

    10:3 Er það ávinningur fyrir þig, að þú undirokar, að þú hafnar verki handa þinna, en lætur ljós skína yfir ráðagerð hinna óguðlegu?

    10:4 Hefir þú holdleg augu, eða sér þú eins og menn sjá?

    10:5 Eru dagar þínir eins og dagar mannanna, eru ár þín eins og mannsævi,

    10:6 er þú leitar að misgjörð minni og grennslast eftir synd minni,

    10:7 þótt þú vitir, að ég er ekki sekur, og að enginn frelsar af þinni hendi?

    10:8 Hendur þínar hafa skapað mig og myndað mig, allan í krók og kring, og samt ætlar þú að tortíma mér?

    10:9 Minnstu þó þess, að þú myndaðir mig sem leir, og nú vilt þú aftur gjöra mig að dufti.

    10:10 Hefir þú ekki hellt mér sem mjólk og hleypt mig sem ost?

    10:11 Hörundi og holdi klæddir þú mig og ófst mig saman úr beinum og sinum.

    10:12 Líf og náð veittir þú mér, og umsjá þín varðveitti andardrátt minn.

    10:13 En þetta falst þú í hjarta þínu, ég veit þú hafðir slíkt í hyggju.

    10:14 Ef ég syndgaði, þá ætlaðir þú að hafa gætur á mér og eigi sýkna mig af misgjörð minni.

    10:15 Væri ég sekur, þá vei mér! Og þótt ég væri réttlátur, þá mundi ég samt ekki bera höfuð mitt hátt, mettur af smán og þjakaður af eymd.

    10:16 Og ef ég reisti mig upp, þá mundir þú elta mig sem ljón, og ávallt að nýju sýna á mér undramátt þinn.

    10:17 Þú mundir leiða fram ný vitni á móti mér og herða á gremju þinni gegn mér, senda nýjan og nýjan kvalaher á hendur mér.

    10:18 Hvers vegna útleiddir þú mig þá af móðurlífi? Ég hefði átt að deyja, áður en nokkurt auga leit mig!

    10:19 Ég hefði átt að verða eins og ég hefði aldrei verið til, verið borinn frá móðurkviði til grafar!

    10:20 Eru ekki dagar mínir fáir? Slepptu mér, svo að ég megi gleðjast lítið eitt,

    10:21 áður en ég fer burt og kem aldrei aftur, fer í land myrkurs og niðdimmu,

    10:22 land svartamyrkurs sem um hánótt, land niðdimmu og skipuleysis, þar sem birtan sjálf er sem svartnætti.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine