Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 11

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    11:1 Þá svaraði Sófar frá Naama og sagði:

    11:2 Á ekki að svara orðagjálfrinu, og á málskrafsmaðurinn að hafa rétt fyrir sér?

    11:3 Ættu stóryrði þín að koma mönnum til að þegja, og ættir þú að spotta og enginn sneypa þig,

    11:4 þar sem þú segir: ,,Kenning mín er rétt, og ég er hreinn í augum Guðs``?

    11:5 En _ ó að Guð vildi tala og ljúka upp vörum sínum í móti þér

    11:6 og kunngjöra þér leyndardóma spekinnar, að í þeim felast margföld hyggindi, þá mundir þú kannast við, að Guð hegnir ekki til fulls misgjörð þinni.

    11:7 Getur þú náð til botns í Guði eða komist til ystu takmarka hins Almáttka?

    11:8 Himinhá er speki hans _ hvað fær þú gjört? dýpri en undirheimar _ hvað fær þú vitað?

    11:9 Hún er lengri en jörðin að víðáttu og breiðari en hafið.

    11:10 Ef hann ryðst fram og hneppir í varðhald og stefnir dómþing _ hver aftrar honum?

    11:11 Því að hann þekkir varmennin og sér ranglætið, þótt hann sé ekki að veita því athygli.

    11:12 Verður óvitur maður hygginn? og fæðist skógarösnu-folald sem maður?

    11:13 Ef þú undirbýr hjarta þitt og breiðir út lófa þína til hans,

    11:14 _ ef misgjörð er í hendi þinni, þá fjarlæg hana, og lát eigi órétt búa í tjöldum þínum _

    11:15 já, þá munt þú flekklaus hefja höfuð þitt, munt standa fastur og eigi þurfa að óttast.

    11:16 Já, þá munt þú gleyma mæðu þinni, þú munt minnast hennar sem vatns, er runnið er fram hjá.

    11:17 Og lífið mun renna upp bjartara en hádegið, þótt dimmi, þá mun það verða sem morgunn.

    11:18 Og þú munt vera öruggur, því að enn er von, og skyggnist þú um, getur þú lagst óhultur til hvíldar.

    11:19 Og þú hvílist, og enginn hræðir þig, og margir munu reyna að koma sér í mjúkinn hjá þér.

    11:20 En augu hinna óguðlegu daprast, fyrir þá er fokið í öll skjól, og þeirra eina von er að gefa upp andann.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine