Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 12

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    12:1 Þá svaraði Job og sagði:

    12:2 Já, vissulega, miklir menn eruð þér, og með yður mun spekin deyja út!

    12:3 En ég hefi vit eins og þér, ekki stend ég yður að baki, og hver er sá, er eigi viti slíkt!

    12:4 Athlægi vinar síns _ það má ég vera, ég sem kallaði til Guðs, og hann svaraði mér, _ ég, hinn réttláti, hreinlyndi, er að athlægi!

    12:5 ,,Ógæfan er fyrirlitleg`` _ segir hinn öruggi, ,,hún hæfir þeim, sem skrikar fótur.``

    12:6 Tjöld spellvirkjanna standa ósködduð, og þeir lifa áhyggjulausir, sem egna Guð til reiði, og sá sem þykist bera Guð í hendi sér.

    12:7 En spyr þú skepnurnar, og þær munu kenna þér, fugla loftsins, og þeir munu fræða þig,

    12:8 eða villidýrin, og þau munu kenna þér, og fiskar hafsins munu kunngjöra þér.

    12:9 Hver þeirra veit ekki að hönd Drottins hefir gjört þetta?

    12:10 Í hans hendi er líf alls hins lifanda og andi sérhvers mannslíkama.

    12:11 Prófar eyrað ekki orðin, eins og gómurinn smakkar matinn?

    12:12 Hjá öldruðum mönnum er speki, og langir lífdagar veita hyggindi.

    12:13 Hjá Guði er speki og máttur, hans eru ráð og hyggindi.

    12:14 Þegar hann rífur niður, þá verður eigi byggt upp aftur, þegar hann setur einhvern í fangelsi, þá verður ekki lokið upp.

    12:15 Þegar hann stíflar vötnin, þá þorna þau upp, þegar hann hleypir þeim, þá umturna þau jörðinni.

    12:16 Hjá honum er máttur og viska, á valdi hans er sá er villist, og sá er í villu leiðir.

    12:17 Hann leiðir ráðherra burt nakta og gjörir dómara að fíflum.

    12:18 Hann leysir fjötra konunganna og bindur reipi um lendar sjálfra þeirra.

    12:19 Hann leiðir presta burt nakta og steypir þeim, sem sitja fastir í sessi.

    12:20 Hann rænir reynda menn málinu og sviptir öldungana dómgreind.

    12:21 Hann hellir fyrirlitning yfir tignarmennin og gjörir slakt belti hinna sterku.

    12:22 Hann grefur hið hulda fram úr myrkrinu og dregur niðdimmuna fram í birtuna.

    12:23 Hann veitir þjóðunum vöxt og eyðir þeim, útbreiðir þjóðirnar og leiðir þær burt.

    12:24 Hann firrir þjóðhöfðingja landsins viti og lætur þá villast um veglaus öræfi.

    12:25 Þeir fálma í ljóslausu myrkri, og hann lætur þá skjögra eins og drukkinn mann.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine