Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 13

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    13:1 Sjá, allt þetta hefir auga mitt séð og eyra mitt heyrt og sett það á sig.

    13:2 Það sem þér vitið, það veit ég líka, ekki stend ég yður að baki.

    13:3 En ég vil tala til hins Almáttka og mig langar til að þreyta málsókn við Guð.

    13:4 Því að sannlega samtvinnið þér lygar og eruð gagnslausir gutlarar allir saman.

    13:5 Ó að þér vilduð steinþegja, þá mætti meta yður það til mannvits.

    13:6 Heyrið átölur mínar og hlustið á ásakanir vara minna.

    13:7 Viljið þér mæla það, sem rangt er, Guði til varnar, og honum til varnar mæla svik?

    13:8 Viljið þér draga taum hans, eða viljið þér taka málstað Guðs?

    13:9 Ætli það fari vel, þegar hann rannsakar yður, eða ætlið þér að leika á hann, eins og leikið er á menn?

    13:10 Nei, hegna, hegna mun hann yður, ef þér eruð hlutdrægir í leyni.

    13:11 Hátign hans mun skelfa yður, og ógn hans mun falla yfir yður.

    13:12 Spakmæli yðar eru ösku-orðskviðir, vígi yðar eru leirvígi.

    13:13 Þegið og látið mig í friði, þá mun ég mæla, og komi yfir mig hvað sem vill.

    13:14 Ég stofna sjálfum mér í hættu og legg lífið undir.

    13:15 Sjá, hann mun deyða mig _ ég bíð hans, aðeins vil ég verja breytni mína fyrir augliti hans.

    13:16 Það skal og verða mér til sigurs, því að guðlaus maður kemur ekki fyrir auglit hans.

    13:17 Hlýðið því gaumgæfilega á ræðu mína, og vörn mín gangi yður í eyru.

    13:18 Sjá, ég hefi undirbúið málið, ég veit, að ég verð dæmdur sýkn.

    13:19 Hver er sá, er deila vilji við mig? þá skyldi ég þegja og gefa upp andann.

    13:20 Tvennt mátt þú, Guð, ekki við mig gjöra, þá skal ég ekki fela mig fyrir augliti þínu.

    13:21 Tak hönd þína burt frá mér, og lát ekki skelfing þína hræða mig.

    13:22 Kalla því næst, og mun ég svara, eða ég skal tala, og veit þú mér andsvör í móti.

    13:23 Hversu margar eru þá misgjörðir mínar og syndir? Kunngjör mér afbrot mín og synd mína!

    13:24 Hvers vegna byrgir þú auglit þitt og ætlar, að ég sé óvinur þinn?

    13:25 Ætlar þú að skelfa vindþyrlað laufblað og ofsækja þurrt hálmstrá,

    13:26 er þú dæmir mér beiskar kvalir og lætur mig erfa misgjörðir æsku minnar,

    13:27 er þú setur fætur mína í stokk og aðgætir alla vegu mína og markar hring kringum iljar mínar?

    13:28 _ Þessi maður dettur þó sundur eins og maðksmoginn viður, eins og möletið fat.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine