Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 14

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    14:1 Maðurinn, af konu fæddur, lifir stutta stund og mettast órósemi.

    14:2 Hann rennur upp og fölnar eins og blóm, flýr burt eins og skuggi og hefir ekkert viðnám.

    14:3 Og yfir slíkum heldur þú opnum augum þínum og dregur mig fyrir dóm hjá þér!

    14:4 Hvernig ætti hreinn að koma af óhreinum? Ekki einn!

    14:5 Ef dagar hans eru ákvarðaðir, tala mánaða hans tiltekin hjá þér, hafir þú ákveðið takmark hans, er hann fær eigi yfir komist,

    14:6 þá lít þú af honum, til þess að hann fái hvíld, svo að hann megi fagna yfir degi sínum eins og daglaunamaður.

    14:7 Því að tréð hefir von, sé það höggvið, þá skýtur það nýjum frjóöngum, og teinungurinn kemur áreiðanlega upp.

    14:8 Jafnvel þótt rót þess eldist í jörðinni, og stofn þess deyi í moldinni,

    14:9 þá brumar það við ilminn af vatninu, og á það koma greinar eins og unga hríslu.

    14:10 En deyi maðurinn, þá liggur hann flatur, og gefi manneskjan upp andann _ hvar er hún þá?

    14:11 Eins og vatnið hverfur úr stöðuvatninu og fljótið grynnist og þornar upp,

    14:12 þannig leggst maðurinn til hvíldar og rís eigi aftur á fætur. Hann rumskar ekki, meðan himnarnir standa og vaknar ekki af svefninum.

    14:13 Ó að þú vildir geyma mig í dánarheimum, fela mig, uns reiði þinni linnir, setja mér tímatakmark og síðan minnast mín!

    14:14 Þegar maðurinn deyr, lifnar hann þá aftur? þá skyldi ég þreyja alla daga herþjónustu minnar, þar til er lausnartíð mín kæmi.

    14:15 Þú mundir kalla, og ég _ ég mundi svara þér, þú mundir þrá verk handa þinna.

    14:16 Því að þá mundir þú telja spor mín, eigi vaka yfir synd minni.

    14:17 Afbrot mín lægju innsigluð í böggli, og á misgjörð mína drægir þú hvítan lit.

    14:18 En eins og fjallið molnar sundur, er það hrynur, og kletturinn færist úr stað sínum,

    14:19 eins og vatnið holar steinana og vatnsflóðin skola burt jarðarleirnum, svo hefir þú gjört von mannsins að engu.

    14:20 Þú ber hann ofurliði að eilífu, og hann fer burt, þú afmyndar ásjónu hans og rekur hann á brott.

    14:21 Komist börn hans til virðingar, þá veit hann það ekki, séu þau lítilsvirt, verður hann þess ekki var.

    14:22 Aðeins kennir líkami hans eigin sársauka, og sál hans hryggist yfir sjálfum honum.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine