Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 15

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    15:1 Þá svaraði Elífas frá Teman og sagði:

    15:2 Skyldi vitur maður svara með vindkenndri visku og fylla brjóst sitt austanstormi _

    15:3 sanna mál sitt með orðum, sem ekkert gagna, og ræðum, sem engu fá áorkað?

    15:4 Auk þess rífur þú niður guðsóttann og veikir lotninguna, sem Guði ber.

    15:5 Því að misgjörð þín leggur þér orð í munn og þú velur þér lævísra tungu.

    15:6 Þinn eigin munnur sakfellir þig, ekki ég, og varir þínar vitna í gegn þér.

    15:7 Fæddist þú fyrstur manna og ert þú í heiminn borinn fyrr en hæðirnar?

    15:8 Hefir þú hlustað í ráði Guðs og hrifsað til þín spekina?

    15:9 Hvað veist þú, er vér eigi vissum, hvað skilur þú, er oss væri ókunnugt?

    15:10 Til eru og öldungar, gráhærðir menn, vor á meðal, auðgari að ævidögum en faðir þinn.

    15:11 Er huggun Guðs þér lítils virði og mildileg orðin sem þú heyrir?

    15:12 Hvers vegna hrífur gremjan þig og hví ranghvolfast augu þín,

    15:13 er þú snýr reiði þinni gegn Guði og lætur þér slík orð um munn fara?

    15:14 Hvað er maðurinn, að hann geti verið hreinn, og sá verið réttlátur, sem af konu er fæddur?

    15:15 Sjá, sínum heilögu treystir Hann ekki, og himinninn er ekki hreinn í augum hans,

    15:16 hvað þá hinn andstyggilegi og spillti, maðurinn, sem drekkur ranglætið eins og vatn.

    15:17 Ég vil fræða þig, heyr þú mig, og það sem ég hefi séð, frá því vil ég segja,

    15:18 því er vitringarnir kunngjörðu _ og duldu ekki _ svo sem arfsögn frá feðrum sínum,

    15:19 en þeim einum var landið gefið, og enginn útlendingur hafði enn farið um meðal þeirra.

    15:20 Alla ævi sína kvelst hinn óguðlegi og öll þau ár, sem geymd eru ofbeldismanninum.

    15:21 Skelfingarhljóð óma í eyrum honum, á friðartímum ræðst eyðandinn á hann.

    15:22 Hann trúir því ekki, að hann komist út úr myrkrinu, og hann er kjörinn undir sverðið.

    15:23 Hann reikar um til þess að leita sér brauðs _ hvar er það? _ hann veit að ógæfudagurinn bíður hans.

    15:24 Neyð og angist skelfa hann, hún ber hann ofurliði eins og konungur, sem búinn er til atlögu,

    15:25 af því hann útrétti hönd sína gegn Guði og reis þrjóskur í móti hinum Almáttka,

    15:26 rann í móti honum illvígur undir þykkum bungum skjalda sinna.

    15:27 Hann þakti andlit sitt spiki og safnaði fitu á lendar sér,

    15:28 settist að í eyddum borgum, í húsum, er enginn átti í að búa og ákveðið var, að verða skyldu að rústum.

    15:29 Hann verður ekki ríkur, og eigur hans haldast ekki við, og kornöx hans svigna ekki til jarðar.

    15:30 Hann kemst eigi undan myrkrinu, frjóanga hans mun loginn svíða, og fyrir reiðiblæstri hans ferst hann.

    15:31 Hann skyldi ekki reiða sig á hégóma; hann villist, því að hégómi verður umbun hans.

    15:32 Það rætist fyrir skapadægur hans, og pálmagrein hans grænkar eigi.

    15:33 Hann hristir af sér súr berin eins og vínviðurinn og varpar af sér blómunum eins og olíutréð.

    15:34 Því að sveit hinna óguðlegu er ófrjó, og eldur eyðir tjöldum mútugjafanna.

    15:35 Þeir ganga þungaðir með mæðu og ala ógæfu, og kviður þeirra undirbýr svik.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine