Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 16

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    16:1 Þá svaraði Job og sagði:

    16:2 Ég hefi heyrt nóg af slíku, hvimleiðir huggarar eruð þér allir saman.

    16:3 Er orðavindurinn nú á enda? eða hvað knýr þig til andsvara?

    16:4 Ég gæti líka talað eins og þér, ef þér væruð í mínum sporum, gæti spunnið saman ræður gegn yður og hrist yfir yður höfuðið,

    16:5 ég gæti styrkt yður með munni mínum, og meðaumkun vara minna mundi lina þjáning yðar.

    16:6 Þótt ég tali, þá linar ekki kvöl mína, og gjöri ég það ekki, hvaða létti fæ ég þá?

    16:7 Miklu fremur hefir Guð nú örþreytt mig, _ þú hefir eytt öllu ættliði mínu,

    16:8 hefir hremmt mig, og það er vitni í móti mér. Sjúkdómur minn rís í gegn mér, ákærir mig upp í opið geðið.

    16:9 Reiði hans slítur mig sundur og ofsækir mig, hann nístir tönnum í móti mér, andstæðingur minn hvessir á mig augun.

    16:10 Þeir glenna upp ginið í móti mér, löðrunga mig til háðungar, allir saman gjöra þeir samtök í móti mér.

    16:11 Guð gefur mig á vald ranglátra og varpar mér í hendur óguðlegra.

    16:12 Ég lifði áhyggjulaus, þá braut hann mig sundur, hann þreif í hnakkann á mér og molaði mig sundur og reisti mig upp sér að skotspæni.

    16:13 Skeyti hans fljúga kringum mig, vægðarlaust sker hann sundur nýru mín, hellir galli mínu á jörðu.

    16:14 Hann brýtur í mig skarð á skarð ofan og gjörir áhlaup á mig eins og hetja.

    16:15 Ég hefi saumað sekk um hörund mitt og stungið horni mínu ofan í moldina.

    16:16 Andlit mitt er þrútið af gráti, og svartamyrkur hvílir yfir hvörmum mínum,

    16:17 þótt ekkert ranglæti sé í hendi minni og bæn mín sé hrein.

    16:18 Jörð, hyl þú eigi blóð mitt, og kvein mitt finni engan hvíldarstað!

    16:19 En sjá, á himnum er vottur minn og vitni mitt á hæðum.

    16:20 Vinir mínir gjöra gys að mér _ til Guðs lítur auga mitt grátandi,

    16:21 að hann láti manninn ná rétti sínum gagnvart Guði og skeri úr milli mannsins og vinar hans.

    16:22 Því að senn eru þessi fáu ár á enda, og ég fer burt þá leiðina, sem ég aldrei sný aftur.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine