Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 18

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    18:1 Þá svaraði Bildad frá Súa og sagði:

    18:2 Hversu lengi ætlið þér að halda áfram þessu orðaskaki? Látið yður segjast, og því næst skulum vér talast við.

    18:3 Hvers vegna erum vér metnir sem skepnur, orðnir heimskir í yðar augum?

    18:4 Þú, sem tætir sjálfan þig sundur í reiði þinni, _ á jörðin þín vegna að fara í auðn og bjargið að færast úr stað sínum?

    18:5 Ljós hins óguðlega slokknar, og logi elds hans skín ekki.

    18:6 Ljósið myrkvast í tjaldi hans, og það slokknar á lampanum yfir honum.

    18:7 Hans öflugu skref verða stutt, og ráðagjörð sjálfs hans steypir honum,

    18:8 því að hann rekst í netið með fætur sína, og hann gengur í möskvunum.

    18:9 Möskvi festist um hæl hans, lykkjan herðist að honum.

    18:10 Snaran liggur falin á jörðinni, og gildran liggur fyrir honum á stígnum.

    18:11 Skelfingar hræða hann allt um kring og hrekja hann áfram, hvar sem hann gengur.

    18:12 Ógæfu hans tekur að svengja, og glötunin bíður búin eftir falli hans.

    18:13 Hún tærir húð hans, og frumburður dauðans etur limu hans.

    18:14 Hann er hrifinn burt úr tjaldi sínu, er hann treysti á, og það lætur hann ganga til konungs skelfinganna.

    18:15 Í tjaldi hans býr það, sem eigi er hans, brennisteini er stráð yfir bústað hans.

    18:16 Að neðan þorna rætur hans, að ofan visna greinar hans.

    18:17 Minning hans hverfur af jörðunni, og nafn hans er ekki nefnt á völlunum.

    18:18 Menn hrinda honum frá ljósinu út í myrkrið og reka hann burt af jarðríki.

    18:19 Hann mun hvorki eiga börn né buru meðal þjóðar sinnar, og enginn, sem undan hefir komist, er í híbýlum hans.

    18:20 Yfir skapadægri hans skelfast eftirkomendurnir, og hrylling grípur þá, er fyrr voru uppi.

    18:21 Já, svo fer um bústaði hins rangláta og svo um samastað þess manns, sem eigi þekkir Guð.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine