Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 19

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    19:1 Þá svaraði Job og sagði:

    19:2 Hversu lengi ætlið þér að angra sál mína og mylja mig sundur með orðum?

    19:3 Þér hafið þegar smánað mig tíu sinnum, þér skammist yðar ekki fyrir að misþyrma mér.

    19:4 Og hafi mér í raun og veru orðið á, þá varðar það mig einan.

    19:5 Ef þér í raun og veru ætlið að hrokast upp yfir mig, þá sannið mér svívirðing mína.

    19:6 Kannist þó við, að Guð hafi hallað rétti mínum og umkringt mig með neti sínu.

    19:7 Sjá, ég kalla: Ofbeldi! og fæ ekkert svar, ég kalla á hjálp, en engan rétt er að fá.

    19:8 Guð hefir girt fyrir veg minn, svo að ég kemst ekki áfram, og stigu mína hylur hann myrkri.

    19:9 Heiðri mínum hefir hann afklætt mig og tekið kórónuna af höfði mér.

    19:10 Hann brýtur mig niður á allar hliðar, svo að ég fari burt, og slítur upp von mína eins og tré.

    19:11 Hann lætur reiði sína bálast gegn mér og telur mig óvin sinn.

    19:12 Skarar hans koma allir saman og leggja braut sína gegn mér og setja herbúðir sínar kringum tjald mitt.

    19:13 Bræður mína hefir hann gjört mér fráhverfa, og vinir mínir vilja eigi framar við mér líta.

    19:14 Skyldmenni mín láta ekki sjá sig, og kunningjar mínir hafa gleymt mér.

    19:15 Skjólstæðingar húss míns og þernur mínar álíta mig aðkomumann, og ég er orðinn útlendingur í augum þeirra.

    19:16 Kalli ég á þjón minn, svarar hann ekki, ég verð að sárbæna hann með munni mínum.

    19:17 Andi minn er konu minni framandlegur, og bræður mínir forðast mig.

    19:18 Jafnvel börnin fyrirlíta mig, standi ég upp, spotta þau mig.

    19:19 Alla mína alúðarvini stuggar við mér, og þeir sem ég elskaði, hafa snúist á móti mér.

    19:20 Bein mín límast við hörund mitt og hold, og ég hefi sloppið með tannholdið eitt.

    19:21 Aumkið mig, aumkið mig, vinir mínir, því að hönd Guðs hefir lostið mig.

    19:22 Hví ofsækið þér mig eins og Guð og verðið eigi saddir á holdi mínu?

    19:23 Ó að orð mín væru skrifuð upp, ó að þau væru skráð í bók

    19:24 með járnstíl og blýi, að eilífu höggvin í klett!

    19:25 Ég veit, að lausnari minn lifir, og hann mun síðastur ganga fram á foldu.

    19:26 Og eftir að þessi húð mín er sundurtætt og allt hold er af mér, mun ég líta Guð.

    19:27 Ég mun líta hann mér til góðs, já, augu mín sjá hann, og það eigi sem andstæðing, _ hjartað brennur af þrá í brjósti mér!

    19:28 Þegar þér segið: ,,Vér skulum ofsækja hann, rót ógæfunnar er hjá honum sjálfum að finna!``

    19:29 þá hræðist ógn sverðsins, því að sverðið er refsing syndar. Þá munuð þér komast að raun um, að til er dómur.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine