Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 20

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    20:1 Þá svaraði Sófar frá Naama og sagði:

    20:2 Fyrir því veita hugsanir mínar mér andsvör og af því að það sýður í mér:

    20:3 Ég verð að hlusta á háðulegar ávítur, en andi minn gefur mér skilning að svara.

    20:4 Veist þú, að svo hefir það verið frá eilífð, frá því er menn voru settir á jörðina,

    20:5 að fögnuður óguðlegra er skammær og að gleði hins guðlausa varir örskotsstund?

    20:6 Þó að sjálfbirgingskapur hans nemi við himin og höfuð hans nái upp í skýin,

    20:7 þá verður hann þó eilíflega að engu eins og hans eigin saur, þeir, sem sáu hann, segja: Hvar er hann?

    20:8 Hann líður burt eins og draumur, svo að hann finnst ekki, og hverfur eins og nætursýn.

    20:9 Augað, sem á hann horfði, sér hann eigi aftur, og bústaður hans lítur hann aldrei framar.

    20:10 Börn hans sníkja á snauða menn, og hendur þeirra skila aftur eigum hans.

    20:11 Þótt bein hans séu full af æskuþrótti, leggjast þau samt með honum í moldu.

    20:12 Þótt hið illa sé honum sætt í munni, þótt hann feli það undir tungu sinni,

    20:13 þótt hann treini sér það og vilji ekki sleppa því og haldi því eftir í miðjum gómnum,

    20:14 þá breytist þó fæðan í innýflum hans, _ í nöðrugall í kviði honum.

    20:15 Auð gleypti hann _ hann verður að æla honum aftur, Guð keyrir hann úr kviði hans.

    20:16 Nöðrueitur saug hann, tunga eiturormsins deyðir hann.

    20:17 Hann má ekki gleðjast yfir lækjum, yfir rennandi ám hunangs og rjóma.

    20:18 Hann lætur af hendi aflaféð og gleypir það eigi, auðurinn sem hann græddi, veitir honum eigi eftirvænta gleði.

    20:19 Því að hann kúgaði snauða og lét þá eftir hjálparlausa, sölsaði undir sig hús, en byggði ekki.

    20:20 Því að hann þekkti enga ró í maga sínum, þó fær hann eigi forðað því, sem honum er dýrmætast.

    20:21 Ekkert komst undan græðgi hans, fyrir því er velsæld hans eigi varanleg.

    20:22 Þótt hann hafi allsnægtir, kemst hann í nauðir, allt magn mæðunnar kemur yfir hann.

    20:23 Þá verður það: Til þess að fylla kvið hans sendir Guð í hann sína brennandi reiði og lætur mat sínum rigna yfir hann.

    20:24 Flýi hann fyrir járnvopnunum, þá borar eirboginn hann í gegn.

    20:25 Hann dregur örina út, þá kemur hún út um bakið, og hinn blikandi oddur kemur út úr galli hans _ skelfing grípur hann.

    20:26 Allur ófarnaður er geymdur auðæfum hans, eldur, sem enginn blæs að, eyðir honum, hann etur það, sem eftir er í tjaldi hans.

    20:27 Himinninn afhjúpar misgjörð hans, og jörðin gjörir uppreisn í móti honum.

    20:28 Gróði húss hans fer í útlegð, rennur burt í allar áttir á degi reiðinnar.

    20:29 Þetta er óguðlegs manns hlutskipti frá Guði og arfleifð sú, sem honum er úthlutuð af hinum Almáttka.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine