Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 21

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    21:1 Þá svaraði Job og sagði:

    21:2 Hlustið gaumgæfilega á mál mitt, og látið það vera huggun af yðar hendi.

    21:3 Unnið mér þess, að ég tali, og þegar ég hefi talað út, þá mátt þú hæða.

    21:4 Er ég þá að kvarta yfir mönnum? eða hví skyldi ég ekki vera óþolinmóður?

    21:5 Lítið til mín og undrist og leggið hönd á munn!

    21:6 Já, þegar ég hugsa um það, skelfist ég, og hryllingur fer um mig allan.

    21:7 Hvers vegna lifa hinir óguðlegu, verða gamlir, já, magnast að krafti?

    21:8 Niðjar þeirra dafna fyrir augliti þeirra hjá þeim og afsprengi þeirra fyrir augum þeirra.

    21:9 Hús þeirra eru óhult og óttalaus, og hirtingarvöndur Guðs kemur ekki niður á þeim.

    21:10 Boli þeirra kelfir og kemur að gagni, kýr þeirra ber og lætur ekki kálfi.

    21:11 Þeir hleypa út börnum sínum eins og lambahjörð, og smásveinar þeirra hoppa og leika sér.

    21:12 Þeir syngja hátt undir með bumbum og gígjum og gleðjast við hljóm hjarðpípunnar.

    21:13 Þeir eyða dögum sínum í velgengni og fara til Heljar í friði,

    21:14 og þó sögðu þeir við Guð: ,,Vík frá oss _ að þekkja þína vegu girnumst vér eigi.

    21:15 Hvað er hinn Almáttki, að vér skyldum dýrka hann, og hvað skyldi það stoða oss að leita hans í bæn?``

    21:16 Sjá, gæfa þeirra er ekki á þeirra valdi, _ ráðlag óguðlegra er fjarri mér.

    21:17 Hversu oft slokknar þá á lampa hinna óguðlegu, og hversu oft kemur ógæfa þeirra yfir þá? Hversu oft deilir Guð þeim hlutskiptum í reiði sinni?

    21:18 Hversu oft verða þeir sem strá fyrir vindi og sem sáðir, er stormurinn feykir burt?

    21:19 ,,Guð geymir börnum hans óhamingju hans.`` Endurgjaldi hann honum sjálfum, svo að hann fái að kenna á því!

    21:20 Sjái augu sjálfs hans glötun hans, og drekki hann sjálfur af reiði hins Almáttka!

    21:21 Því að hvað hirðir hann um hús sitt eftir dauðann, þegar tala mánaða hans er fullnuð?

    21:22 Ætla menn að kenna Guði visku eða dæma hinn hæsta?

    21:23 Einn deyr í mestu velgengni, fullkomlega áhyggjulaus og ánægður,

    21:24 trog hans eru full af mjólk, og mergurinn í beinum hans er safamikill.

    21:25 Og annar deyr með beiskju í huga og hefir aldrei notið hamingjunnar.

    21:26 Þeir hvíla báðir í duftinu, og maðkarnir hylja þá.

    21:27 Sjá, ég þekki hugsanir yðar og fyrirætlanir, að beita mig ofbeldi.

    21:28 Þegar þér segið: ,,Hvar er hús harðstjórans og hvar er tjaldið, sem hinir óguðlegu bjuggu í?``

    21:29 hafið þér þá ekki spurt vegfarendur, _ og sönnunum þeirra munuð þér ekki hafna _

    21:30 að á degi glötunarinnar er hinum vonda þyrmt, á reiðinnar degi er þeim skotið undan.

    21:31 Hver setur honum breytni hans fyrir sjónir? Og þegar hann gjörir eitthvað, hver endurgeldur honum?

    21:32 Og til grafar er hann borinn og vakað er yfir legstaðnum.

    21:33 Moldarhnausar dalsins liggja mjúklega ofan á honum, og eftir honum flykkjast allir menn, eins og óteljandi eru á undan honum farnir.

    21:34 Og hvernig megið þér þá hugga mig með hégóma, og andsvör yðar _ sviksemin ein er eftir!

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine