Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 24

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    24:1 Hvers vegna eru ekki hegningartímar geymdir af hinum Almáttka,

    24:2 og hví sjá þeir ekki daga hans, sem á hann trúa? Menn færa landamerki úr stað, ræna hjörðum og halda þeim á beit.

    24:3 Asna munaðarleysingjanna reka menn burt og taka uxa ekkjunnar að veði.

    24:4 Þeir hrinda hinum fátæku út af veginum, hinir bágstöddu í landinu verða allir að fela sig.

    24:5 Já, sem skógarasnar á öræfum ganga þeir út til starfa sinna, leitandi að fæðu, eyðimörkin veitir þeim brauð handa börnunum.

    24:6 Á akrinum uppskera þeir fóður sitt og fara í eftirleit í víngarði hins óguðlega.

    24:7 Naktir liggja þeir um nætur, klæðlausir, og hafa enga ábreiðu í kuldanum.

    24:8 Þeir eru gagndrepa af fjallaskúrunum, og hælislausir faðma þeir klettinn.

    24:9 Menn slíta föðurleysingjana af brjóstinu og taka veð af hinum bágstöddu.

    24:10 Naktir ganga þeir, klæðlausir, og hungraðir bera þeir kornbundin.

    24:11 Í olífugörðum annarra pressa þeir olíu, troða vínlagarþrór og kveljast af þorsta.

    24:12 Úr borgunum heyrast stunur deyjandi manna, sálir hinna drepnu hrópa á hefnd, en Guð gefur ekki gaum að óhæfunni.

    24:13 Slíkir menn eru ljósfjendur orðnir, þeir þekkja ekki vegu hans og halda sig ekki á stigum hans.

    24:14 Með morgunsárinu fer morðinginn á fætur og drepur hinn volaða og snauða, og á nóttunni læðist þjófurinn.

    24:15 Og auga hórkarlsins bíður eftir rökkrinu, og hann segir: ,,Ekkert auga sér mig,`` og dregur skýlu fyrir andlitið.

    24:16 Í myrkrinu brjótast þeir inn í hús, á daginn loka þeir sig inni, þeir þekkja ekki ljósið.

    24:17 Því að öllum er þeim niðamyrkrið morgunn, því að þeir eru nákunnugir skelfingum niðamyrkursins.

    24:18 Fljótt berst hann burt með straumnum, bölvaður verður erfðahluti hans í landinu, hann snýr eigi framar á leið til víngarðanna.

    24:19 Þurrkur og hiti hrífa snjóvatnið burt, Hel þann, er svo hefir syndgað.

    24:20 Móðurskautið gleymir honum, ormarnir gæða sér á honum. Hans er eigi framar minnst, og ranglætið verður brotið sundur eins og tré,

    24:21 hann sem rændi óbyrjuna, er ekki fæddi, og enga velgjörð sýndi ekkjunni.

    24:22 En Guð heldur samt hinum volduga við með mætti sínum, slíkur maður rís aftur upp, þótt hann væri tekinn að örvænta um lífið.

    24:23 Guð veitir honum að lifa óhultur, og hann er studdur, og augu hans vaka yfir vegum hans.

    24:24 Hátt standa þeir, en eftir stundarkorn eru þeir horfnir. Þeir hníga, þeir eru hrifnir burt eins og allir aðrir og sviðnir af eins og höfuð kornaxins.

    24:25 Og ef það er eigi svo, _ hver vill þá sanna, að ég sé lygari, og gjöra ræðu mína að engu?

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine