Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 23

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    23:1 Þá svaraði Job og sagði:

    23:2 Enn sem fyrr munu kveinstafir mínir verða taldir uppreisn, hönd Guðs hvílir þungt á andvörpum mínum.

    23:3 Ég vildi að ég vissi, hvernig ég ætti að finna hann, hvernig ég gæti komist fram fyrir dómstól hans!

    23:4 Þá mundi ég útskýra málið fyrir honum og fylla munn minn sönnunum.

    23:5 Ég mundi fá að vita, hverju hann svaraði mér, og heyra hvað hann segði við mig.

    23:6 Mundi hann deila við mig í mikilleik máttar síns? Nei, hann mundi veita mér óskipta athygli.

    23:7 Þá mundi hreinskilinn maður þreyta málsókn við hann, og ég mundi að eilífu losna við dómara minn.

    23:8 En fari ég í austur, þá er hann þar ekki, og í vestur, þar verð ég hans eigi var.

    23:9 Þótt hann hafist að í norðri, þá sé ég hann ekki, og sveigi hann á leið til suðurs, fæ ég ekki litið hann.

    23:10 En hann veit, hvernig breytni mín hefir verið, ef hann prófaði mig, mundi ég reynast sem gull.

    23:11 Fótur minn hefir þrætt spor hans, ég hefi haldið veg hans og eigi hneigt af leið.

    23:12 Frá skipun vara hans hefi ég ekki vikið, hefi varðveitt í brjósti mér orð munns hans.

    23:13 En hann er samur við sig _ hver aftrar honum? Ef hann girnist eitthvað, gjörir hann það.

    23:14 Já, hann framkvæmir það, er hann hefir ætlað mér, og mörgu slíku býr hann yfir.

    23:15 Þess vegna skelfist ég auglit hans. Hugleiði ég það, hræðist ég hann.

    23:16 Já, Guð hefir gjört mig hugdeigan, og hinn Almáttki skotið mér skelk í bringu.

    23:17 Því að það er ekki vegna ógæfunnar, að ég stend örþrota, né vegna sjálfs mín, þótt niðdimman hylji mig.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine