Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 26

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    26:1 Þá svaraði Job og sagði:

    26:2 En hvað þú hefir hjálpað hinum þróttlausa, stutt hinn máttvana armlegg!

    26:3 En hvað þú hefir ráðið hinum óvitra og kunngjört mikla speki!

    26:4 Fyrir hverjum hefir þú flutt ræðu þína, og hvers andi var það, sem gekk fram úr þér?

    26:5 Andar hinna framliðnu í undirdjúpunum skelfast ásamt vötnunum og íbúum þeirra.

    26:6 Naktir liggja undirheimar fyrir Guði og undirdjúpin skýlulaus.

    26:7 Hann þenur norðrið út yfir auðninni og lætur jörðina svífa í tómum geimnum,

    26:8 hann bindur vatnið saman í skýjum sínum, og þó brestur skýflókinn ekki undir því,

    26:9 hann byrgir fyrir ásjónu hásætis síns með því að breiða ský sitt yfir hana.

    26:10 Marklínu hefir hann dregið hringinn í kring á haffletinum, þar sem mætast ljós og myrkur.

    26:11 Stoðir himinsins nötra og hræðast ógnun hans.

    26:12 Með mætti sínum æsir hann hafið, og með hyggindum sínum sundurmolar hann hafdrekann.

    26:13 Fyrir andgusti hans verður himinninn heiður, hönd hans leggur í gegn hinn flughraða dreka.

    26:14 Sjá, þetta eru aðeins ystu takmörk vega hans, og hversu lágt hvísl er það, sem vér heyrum! En þrumu máttarverka hans _ hver skilur hana?

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine